Tveir kærðir fyrir meintan akstur undir áhrifum fíkniefna
6. júlí, 2010
Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíðina. Var Lögregla með mikið eftirlit vegna þess. Var nokkur ölvun meðal gesta Goslokahátíðarinnar og þurfti Lögregla að aðstoða nokkra sökum þess hversu ölvaðir þeir voru. Þá fengu þrír aðilar á sig kæru fyrir að vera með óspektir í bænum. Að öðru leiti fór Goslokahátíðin nokkuð vel fram.