Um 600 metra langir varnargarðar sem verja Landeyjarhöfn, munu standast álag flóðbylgju
Kötlugos gæti valdið töluverðum skemmdum á fyrirhugaðri Landeyjahöfn í Bakkafjöru. Siglingastofnun metur það þó svo, að tjónið yrði ekki nógu mikið til að það borgi sig að gera ráðstafanir við uppbyggingu hafnarinnar og mannvirkja hennar.