Mikil umferð smærri báta hefur verið um Landeyjahöfn undanfarið og leggja jafnframt margir leið sína að höfninni landmegin á bílum. Fólk á öllum aldri, jafnvel mæður með smábörn og mjög roskið fólk hefur sést þar klifrandi í grjótgörðunum innan um stórvirkar vinnuvélar. Engar slysavarnir eru til staðar í höfninni og því skapa óþarfa ferðalög almennings á þessu vinnusvæði mikla slysahættu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst