Lið Vestmannaeyja keppir í kvöld í spurningaþættir Ríkissjónvarpsins, �?tsvari. Lið Eyjamanna skipa þau Ágúst �?rn Gíslason, Sveinn Waage og Jórunn Einarsdóttir. Strákarnir hafa áður tekið þátt í keppninni en Jórunn er nýliði. �?átturinn verður í sjónvarpinu klukkan 20:55 eða strax að loknum landsleik Íslands og Kýpur. Keppendur Eyjanna hvetja þá sem hafa tök á því að mæta í sjónvarpssal, að gera það og styðja við liðið.
Húsið verður opið frá 18:30 og verður hægt að horfa á landsleikinn í beinni á stórum skjá í Efstaleitinu á meðan beðið er.