Vann 54 milljónir uppi í bústað
Stóri vinningurinn eyðilagði spilakvöldið
Lotto Logo

Það fóru efalaust margir í pottinn í sumarbústöðum landsins um síðustu helgi en fáir voru þó jafn lukkulegir og sá sem vann stóra pottinn í Lottóinu uppi í bústað með kærustunni. Þar var á ferðinni tæplega fimmtugur karlmaður sem nýtti sér tæknina í sveitasælunni til að kaupa Lottómiða í appinu á laugardeginum, enda fyrsti vinningur fjórfaldur. Þegar hann kannaði málið í appinu eftir útdráttinn blasti við stóri vinningurinn, uppá tæpar 54 milljónir.

Hinn heppni hafði þó sínar efasemdir og þorði ekki að trúa góðu fréttunum strax, hvað þá segja kærustunni frá. Laumuspilið gerði það hins vegar að verkum að illa gekk að einbeita sér það sem eftir var kvölds að hinum hefðbundnu spilum sem spiluð voru í sumarbústaðnum. Strax eftir helgina voru góðu fréttirnar svo staðfestar hjá Íslenskri getspá og þá gat þessi lukkunnar pamfíll loks andað léttar og greint kærustunni og börnunum frá þessum frábæru fréttum, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þar er vinningshafanum óskað innilega til hamingju og um leið er þakkað fyrir veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

 

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.