VERA �?? nýjung í tímabókunum og lyfjaendurnýjunum á HSU
Nú hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands opnað fyrir heilsuvefinn VERU. VERA er samvinnuverkefni Embætti landlæknis, Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og TM Software og er öruggt vefsvæði þar sem notandi getur átt í samskiptum við heilbrigðisþjónustuna og nálgast gögn sem skráð eru um hann í heilbrigðiskerfið á Íslandi.
Krafist er rafrænna skilríkja til að tengjast inn á www.heilsuvera.is sem nauðsynlegt er til að tryggja öryggi þeirra upplýsinga. Í VERU er m.a. hægt að skrá afstöðu sína til líffæragjafar sem skráist þá inn í miðlægan gagnagrunn heilbrigðisþjónustunnar hérlendis. �?eir notkunarmöguleikar sem teknir hafa verið í notkun á heilsugæslustöðvum HSU og fleiri heilbrigðisstofnunum, eru lyfjaendurnýjanir og tímabókanir. Opnað hefur verið fyrir VERU á heilsugæslustöðvum HSU í �?orlákshöfn, Laugarási, Rangárþingi, Vík og á Kirkjubæjarklaustri. �?ann 19. nóvember n.k. verður einnig opnað fyrir vefinn á heilsugæslustöðvunum í Vestmannaeyjum, Hveragerði og á Selfossi.
Rafrænar tímabókanir og lyfjaendurnýjanir
VERA virkar jafnt í heimilistölvunni, spjaldtölvunni sem snjallsímanum. Vefurinn veitir notendum möguleika á að bóka tíma hjá heimilislækni á sinni heilsugæslustöð. Eftir sem áður er hægt að bóka læknatíma símleiðis hjá móttökuriturum. Unnið er að því að einnig verði hægt að bóka tíma hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á þennan hátt.
Í VERU geta notendur einnig séð yfirlit yfir lyfseðla sem þeir eiga í Lyfseðlaskrá landlæknis og þar geta þeir óskað eftir endurnýjun á lyfjunum sínum en eingöngu á þeim lyfjum sem þeir eru þegar á. �?etta er mun öruggari leið þar sem sjúklingur notar rafræn skilríki til að skrá sig inn í VERU og beiðnin kemur inn í rafræna sjúkraskrá í stað þess að berast í netfang stofnunarinnar. Lyfjaendurnýjanir í gegnum tölvupóst á vefsíðu stofnunarinnar verða því lagðar af eftir mánaðar aðlögunartíma. Eftir sem áður er hægt að endurnýja lyf símleiðis hjá læknariturum.
Yfirlit yfir bólusetningar barna
Í VERU geta foreldrar og forráðamenn einnig fylgst með lyfseðlum, tímabókunum og bólusetningum barna sinna að 15 ára aldri og bókað tíma fyrir þau hjá heimilislækni. Starfsmenn HSU vilja hvetja alla til að kynna sér möguleika VERU á www.heilsuvera.is. Inni á vef Hsu.is er hægt að nálgast kynningarmyndband um vefinn sem og bækling.
Vefur Hsu.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.