Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverið í Djúpinu. Hann hefur leikið í allmörgum kvikmyndum og má þar nefna myndir eins og Börn, Foreldra, Brúðgumann, Reykjavík-Rotterdam og Fangavaktina. Er hann kominn í hóp okkar bestu leikara og hefur náð að skapa nokkrar mjög eftirminnilegar persónur. Djúpið byggir á raunverulegum atburðum, Heimaeyjargosinu 1973, Helliseyjarslysinu og afreki Guðlaugs Friðþórssonar sem bjargaðist á undraverðan hátt þegar báturinn sökk þrjár sjómílur austur af Eyjum. Ólafur Darri er mjög ánægður með veruna í Vestmannaeyjum og var tilbúinn í spjall um myndina og hlutverkið.