Á morgun föstudag verða Íslensku tónlistarverðlaunin afhent. �?ar eigum við Eyjamenn okkar fulltrúa í fyrsta sinn í nokkurn tíma. En Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson betur þekktur sem Júníus Meyvant hlýtur tvær tilnefningar í ár. Lag hans Color Decay er tilnefnt sem popplag ársins og hann er einnig tilnefndur sem bjartasta vonin í poppi og rokki. En þar er það þjóðin sem velur og er
hægt að gera það hér.
Við á Eyjafréttum veltum því fyrir okkur hvort hann væri fyrsti og eini Eyjamaðurinn sem hefur hlotið slíka tilnefningu. �?að er þó fjarri lagi því Eyjamaðurinn Eiður Arnarsson hefur hlotið nokkrar slíkar bæði með hljómsveit sinni Todmobile og sem bassaleikari ársins. Hefur hann jafnframt hlotið hnossið nokkru sinnum. Sem og að sjálfsögðu Bjartmar Guðlaugsson.
Ef þið munið eftir fleirum þá endilega leiðréttið okkur hér að neðan.