Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað álagningu útsvars fyrir árið 2016 hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. �?tsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitafélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára.
�?ll sveitarfélögin sem skoðuð voru nema eitt eru með sömu útsvarsprósentu og 2015. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkaði útsvarið, nam hækkunin 2,7% á milli ára eða úr 13,98% í 14,36%. Hjá Reykjanesbæ er 3,62% er auka álag lagt á vegna slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Aðeins Kópavogur, Garðabær, Seltjarnarnes og Vestmannaeyjabær innheimta útsvar undir hámarkinu sem er 14,52%. Lægsta útsvarið er 13,7% hjá Garðabæ og Seltjarnarneskaupstað.