Í Verðlagseftirlit ASÍ þar sem könnuð eru útgjöld hjá 15 særtstu sveitarfélögunum kemur fram að Eyjamenn eru með hæstu Sorphirðugjöldin.
Sorphirðu- og sorptengd gjöld eru innheimt sem föst upphæð á hverja íbúð eða fjölda tunna við hús. Aðeins hjá Reykjanesbæ er sama verðlag og í fyrra. Í Kópavogi, Akureyri og Vestmannaeyjum lækkar gjaldskráin á milli ára. �?nnur sveitarfélög hækka gjaldskránna á milli ára.
Hæstu gjöldin eru greidd í Vestmannaeyjum 50.552 kr. og lægstu gjöldin eru greidd í Kópavogi 22.600 kr. og er það 124% verðmunur eða 27.952 kr. Sem dæmi um miklar hækkanir á milli ára má nefna að mesta hækkunin er 31% í Reykjavík, 13% hjá Sveitarfélaginu Árborg, 8,1% í Hafnafirði og um 7% í Garðabæ.