Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Hluti af flota Vinnslustöðvarinnar í heimahöfn.
Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Breska sjávarútvegsblaðið Fish Focus heimsótti nýverið Ísland þar sem blaðamenn miðilsins kynntu sér íslenskan sjávarútveg, samfélög og fyrirtæki sem starfa í greininni. Í ferðinni var sérstök áhersla lögð á Vestmannaeyjar, þar sem sjávarútvegur hefur mótað atvinnulíf og mannlíf um áratugaskeið. Á vef Vinnslustöðvarinnar er stiklað á stóru úr umfjöllun blaðsins.

Í ítarlegri umfjöllun blaðsins dvelur Fish Focus við heimsókn sína til Vinnslustöðvarinnar og lýsir fyrirtækinu sem hjarta samfélagsins í Vestmannaeyjum. Blaðamenn heimsóttu Vinnslustöðina og kynntu sér starfsemina í fylgd Sverris Haraldssonar, sviðsstjóra botnfisksviðs VSV.

Hefð, gæði og nútímatækni

Í umfjölluninni er fjallað um vinnslu VSV á saltfiski þar sem hefðbundnar aðferðir eru sameinaðar nútímatækni til að tryggja hágæða afurðir. Saltfiskur er ein verðmætasta útflutningsafurð Íslands og nýtur mikilla vinsælda á alþjóðamörkuðum, meðal annars í Suður-Evrópu og Karíbahafinu.

Blaðamenn Fish Focus fóru einnig um borð í togara VSV, Breka VE. Þar kynntu þau sér veiðiaðferðir og hvernig aflinn er meðhöndlaður með hámörkun gæða að markmiði.

Sterk tengsl við samfélagið

Í greininni er lögð áhersla á þá sérstöðu sem felst í staðsetningu VSV í Vestmannaeyjum. Stutt sigling til fiskimiða gerir kleift að landa og vinna fisk nánast strax eftir veiðar, sem stuðlar að gæðum, minni umhverfisáhrifum og aukinni sjálfbærni.

Fram kemur í umfjölluninni að Vinnslustöðin sé einn stærsti vinnuveitandi Vestmannaeyja með um 300 starfsmenn allt árið og fleiri á vertíðum. Um 7% íbúa eyjanna starfa hjá fyrirtækinu og margar fjölskyldur hafa haft afkomu sína af starfseminni í gegnum kynslóðir.

Sjálfbærni og framtíðarsýn

Fish Focus fjallar einnig um áherslur VSV á sjálfbærni og ábyrgð í rekstri. Bent er á að fyrirtækið starfi samkvæmt ströngum gæðakerfum og er vottað af Iceland Responsible Fisheries. Jafnframt hefur VSV á síðustu árum eflt starfsemi sína með nútímavæðingu vinnslu, kaupum á öðrum fyrirtækjum og opnun söluskrifstofa víða um heim.

Í lok umfjöllunarinnar er Vinnslustöðin sögð meira en sjávarútvegsfyrirtæki – hún sé órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd Vestmannaeyja og lifandi dæmi um hvernig samfélag getur byggt upp öfluga atvinnustarfsemi í sátt við náttúruna og hafið.

Hér má sjá alla umfjöllun Fish Focus.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.