Fjölgreindarleikum 1. til 7. bekkjar GRV lauk í gær eftir tvo viðburðaríka og skemmtilega daga. Leikarnir eru byggðir á kenningum Howards Gardners um fjölgreindir, þar sem lögð er áhersla á að nemendur fái að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á ólíka styrkleika.
Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Grunnskóla Vestmannaeyja. Þar segir að nemendur í 7. bekk gegndu mikilvægu hlutverki sem fyrirliðar en þeir stjórnuðu og báru ábyrgð á liðinu sínu í gegnum leikana. Áhersla var lögð á samvinnu þvert á árganga og tókst dagskráin einstaklega vel.
Nemendur heimsóttu 28 stöðvar þar sem verkefnin voru fjölbreytt. Meðal þess sem boðið var upp á í Hs. var keila, hvísluleikur, kahoot, dansþraut, kubbaturn, hestastöð og tónlistarþraut. Þá spreyttu nemendur sig á púsli, tangram, jenga kubbum, Alias, þekkja dýr og kennileiti í Vestmannaeyjum, landi og borg og Krakkakvissi.
Í íþróttahúsinu var einnig mikil virkni og var farið í að rekja bolta, hringjakast, körfuhittni, pútt og hanga í rimlum. Einnig var boðið upp á boltahittni, hlaupabingó, badminton og grænmetisgarðinn, kunnáttu í vörumerkjum, minnisþraut, baunapokaleik og flokkun og greiningu á plöntum og ping pong þraut. Starfsfólk GRV stóð sig einstaklega vel og einnig þökkum við nemendum fyrir frábæra þátttöku og einstaklega prúða framkomu á leikunum.

