Viðurkenningu fyrir snyrtilegustu eignina 2023 hlutu þau Ólöf og Kristján fyrir eign sína að Heiðarvegi 49
10. október, 2023

Umhverfisverðlaun Vestmannaeyja 2023 voru afhent 15. september sl. Dómnefnd frá Vestmannaeyjabæ sá um að afhenda verðlaunin. Óskað var eftir tilnefningum frá bæjarbúum en einnig komu tilnefningar frá Rótarýklúbb Vestmannaeyja. 

 Umhverfisviðurkenningar árið 2023 hlutu: 

  • Fegursti garðurinn: Vestmannabraut 12-20. 
  • Snyrtilegasta eignin: Heiðarvegur 49. 
  • Endurbætur til fyrirmyndar: Póley. 
  • Snyrtilegasta fyrirtækið: Brothers Brewery.
  • Framtak á sviði umhverfismála: Marinó Sigursteinsson. 

Viðurkenningu fyrir snyrtilegustu eignina 2023 hlutu þau Ólöf og Kristján fyrir eign sína að Heiðarvegi 49 og voru þau Eyjamenn vikunnar í 19. tbl Eyjafrétta.

Fjölskyldan á góðri stundu. Frá vinstri: William Thomas, Jenný, Ólöf, Kristján, Helga Björk, Erla Rós, Sigmar Helgi og Magnús Örn. 

 

 

Ólöf Helgadóttir 

 Fjölskylda? Börnin okkar eru Helga Björk, William Thomas og Magnús Örn. Tengdadætur eru Jenný og Erla Rós og barnabarn Sigmar Helgi. 

 Mottó? Hafa gaman. 

 Áhugamál? Útivera, fjallganga, handbolti og prjónaskapur.

Síðasta hámhorfið? Between two worlds. 

 Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án? Held það sé kaffisopinn, erfitt að sleppa honum. 

 Venjulegur dagur hjá þér? Vinna, Hressó líkamsrækt og auðvitað Heimaklettur. 

 Hvað óttast þú mest? Að missa heilsuna. 

 Hvaða tónlist kemur þér í gott skap? Mér finnst flest öll tónlist góð og hlusta á flest allt. 

 Hvað er velgengni fyrir þér? Að öllum líði vel.

Snyrtilegasta eignin 2023, hvernig er tilfinningin? Hún var bara skemmtileg. 

 Hversu lengi hafið þið búið að Heiðarvegi 49? 20 ár.

Áttu þér uppáhalds verkefni þegar kemur að viðhaldi? Nei get ekki sagt það. 

 Eitthvað að lokum? Að lokum vil ég þakka Umhverfisnefnd fyrir að velja okkar hús sem snyrtilegustu eignina. 

 

 Kristján L. Möller 

 Mottó? Ég vil, ég get, ég skal. Lífið er núna. 

 Áhugamál? Arsenal og ÍBV handboltinn, fylgist með þeim, ef það er hægt telja það sem áhugamál.

Síðasta hámhorfið? Last Kingdom. 

 Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án? Kaffi. Byrja daginn á góðum kaffisopa og enda daginn á góðum kaffisopa. 

 Venjulegur dagur hjá þér? Ætli hann sé ekki líkt og hjá flestum, vinna, sofa og borða. Svo brjótumst við út úr hversdagsleikanum annað kastið til að hlaða batteríin. 

 Hvað óttast þú mest? Það er svo sem ósköp lítið að óttast. Mín lífsspeki felst svolítið mikið í Æðruleysisbæninni. Forðast að búa til eitthvað  sem ekki er orðið og tek á hlutum ef og þegar þeir upp á koma. 

 Hvaða tónlist kemur þér í gott skap? Sígild íslensk tónlist. 

 Hvað er velgengni fyrir þér? Að geta farið að sofa að kvöldi og vakna að morgni sáttur við sjálfan mig og við alla þá sem í kringum mig eru. Það er velgengni fyrir mér. 

 Fer mikil vinna í að viðhalda eigninni? Endalaus vinna. Þegar maður heldur að allt sé búið er kominn tími til að byrja upp á nýtt.

 Er verkaskipting hjá ykkur? Ólöf er meira inni og ég úti.

Áttu þér uppáhalds verkefni þegar kemur að viðhaldi? Ekkert uppáhalds. Geri það sem þarf að gera og það veitir mér ánægju. 

 Einhver tips til annarra Eyjamanna? Verum góð hvert við annað. 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.