Eins og fram kom í síðasta tölublaði Frétta, keypti þjóðhátíðarnefnd fjölda ferða Herjólfs bæði fyrir og eftir þjóðhátíð. Félagið endurselur svo ferðirnar á vefsíðu hátíðarinnar, www.dalurinn.is en þar er einnig boðið upp á gistingu. Þessi framkvæmd hefur verið mikið rædd á kaffistofum bæjarins og sitt sýnist hverjum. Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar svaraði nokkrum spurningum blaðsins um gjörninginn.