„Fyrir nokkrum vikum átti ég fund með hópi fólks sem var nóg boðið í því sem sneri að neyslu vímuefna hér í Eyjum. Uppistaðan í þessum hópi var fólk sem á börn á unglinsaldri. Rétt er að taka sérstaklega fram að það var einróma álit þeirra að vandinn væri síst stærri hér í Eyjum en annars staðar,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar Eyjafréttir leituðu álits hjá honum á aðgerðum Vinnslustöðvarinnar.