Á fimmtudagskvöld kl. 20.00 verð ég með almennan fund á Kaffi Kró. Þar mun ég fara yfir ýmis málefni, segja frá störfum mínum í þinginu og ekki síður mörgum jákvæðum málum sem eru í gangi í landinu og hér í Eyjum. Mun einnig ræða um samgöngu- og heilbrigðismál. Þá er eitt mikilvægasta atriði fundarins að hlusta á íbúa í Eyjum og taka við ábendingum þeirra. Þá mun ég eftir bestu getu svara spurningum fundarmanna.