Yfir 90% íbúa ánægðir
Vestmannaeyjabær skorar hátt í þjónustukönnun Gallup og trónir á toppnum í þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk, en bæjaryfirvöld hyggjast bregðast við óánægju með sorphirðu
Blíða í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Yfir 90% íbúa Vestmannaeyja eru ánægð með bæinn sem búsetustað, samkvæmt tilkynningu frá bæjaryfirvöldum. Þetta kemur fram í þjónustukönnun Gallup sem framkvæmd var dagana 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026 og hafði það markmið að meta ánægju með þjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins, bera saman niðurstöður og fylgjast með þróun milli ára.

Samkvæmt niðurstöðunum raðast Vestmannaeyjabær í 2.–4. sæti í samanburði við önnur sveitarfélög. Mest ánægja mælist með þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara, þar sem bærinn er í 1. sæti í báðum flokkum. Þá er sveitarfélagið í 2.–3. sæti þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Vestmannaeyjabær sé yfir landsmeðaltali í öllum þjónustuþáttum nema sorphirðu. Þar mælist talverð óánægja og marktæk lækkun frá fyrra ári.

Bæjarráð fór yfir niðurstöðurnar á fundi sínum í vikunni og lýsti yfir ánægju með þær, enda hafi bærinn, líkt og undanfarin ár, komið afar vel út úr könnuninni í heild. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að fara yfir sorpmál og ráðast í úrbætur á því sviði.

Ekki verður boðað til sérstaks íbúafundar um niðurstöðurnar að þessu sinni, að því er fram kemur í tilkynningunni, þar sem íbúafundur vegna íbúakosningar er fyrirhugaður á næstunni.

Bæjaryfirvöld hvetja íbúa til að senda ábendingar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar eða það sem betur megi fara á netfangið thjonustukonnun@vestmannaeyjar.is.

Hér má kynna sér niðurstöðurnar betur.

Nýjustu fréttir

Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.