Ykkar er valið
Kjartan Vídó Ólafsson. Ljósmynd/aðsend.

Aðsend grein

Kjartan Vídó

Prófkjör er mikilvæg og lýðræðisleg leið þar sem flokksbundnum Sjálfstæðismönnum gefst tækifæri til að velja þá einstaklinga sem þeir treysta best til að vera fulltrúar flokksins í komandi kosningum. Það er ekki sjálfgefið að þessi leið sé farin, en í Vestmannaeyjum hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið sá eini sem gefur bæjarbúum raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á val frambjóðenda.

Ég ákvað að taka þátt í prófkjörinu vegna þess að ég brenn fyrir því að leggja mitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjar enn betra samfélag til framtíðar. Eyjarnar eru einstakur staður sem byggir á dugnaði, frumkvæði og sterkri samstöðu.

Undanfarin ár hef ég fylgst náið með málefnum bæjarins úr fjarlægð, en nú er um eitt ár síðan ég flutti aftur heim til Eyja. Það hefur styrkt enn frekar vilja minn til að taka þátt og leggja mitt af mörkum til uppbyggingar samfélagsins. Ég tel mikilvægt að tryggja áfram öfluga atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum, skapa góð skilyrði fyrir fjölskyldur með sterkum leik- og grunnskólum og halda áfram að byggja upp innviði sem styðja við vöxt og lífsgæði í bæjarfélaginu.

Ef við viljum fjölga íbúum og laða ungt fólk heim að námi loknu verðum við að tryggja raunveruleg atvinnutækifæri. Fólk velur sér búsetu þar sem bæði eru spennandi störf og gott samfélag. Vestmannaeyjar hafa marga styrkleika, öflugt samfélag, stuttar vegalengdir, gott skólastarf og sterka sjálfsmynd en án starfa nýtast þeir ekki til fulls

Ég býð fram krafta mína, hugmyndir og vilja til að vinna með öðrum að framgangi mála sem skipta Vestmannaeyjar máli. Ég vona að ég fái stuðning ykkar í prófkjörinu og hlakka til að taka þátt í þeirri mikilvægu vinnu sem framundan er fyrir sveitarfélagið okkar.

Kjartan Vídó
Frambjóðandi í 3. – 4. sæti

Nýjustu fréttir

Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.