Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Trollið tekið inn. Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE eru að landa í Þorlákshöfn í dag. Rætt er stuttlega við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar þar sem farið er yfir upplýsingar um aflabrögð og veður.

Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver, sagði að túrinn hefði verið heldur þreytandi vegna veðurfarsins. „Við byrjuðum á að veiða karfa á Melsekk í sæmilegu veðri. Síðan var haldið austur eftir og það var heldur lítið að hafa. Við enduðum á Glettinganesflakinu og þá var komið snælduvitlaust veður þannig að það var ekkert annað að gera en að fara í land. Aflinn var 52 tonn, mest karfi og síðan ýsa og þorskur. Haldið var til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk. Líklega verður veitt á miðum úti fyrir suðausturlandinu en veðurútlit er ekki mjög gott, sagði Þórhallur þegar rætt var við hann sídegis í gær.

Skipstjórarnir á Vestmannaey og Bergey létu ágætlega af veiðinni en afli beggja var mest þorskur, rauðspretta og ufsi. Bæði skip voru að veiðum á Planinu vestan við Eyjar. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri á Vestmannaey lét ekki vel af veðrinu. „Það var drulluveður og haugasjór en það gekk hins vegar ágætlega að veiða,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey var einnig ánægður með aflabrögðin. „Þetta var stuttur túr eða einungis tveir sólarhringar höfn í höfn og aflinn var vel blandaður. Ég held menn hljóti að vera ágætlega sáttir við þessa veiðiferð,” sagði Jón. Bæði Vestmannaey og Bergey halda á ný til veiða í kvöld.

Nýjustu fréttir

Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.