Segi það hér með opinberlega �??�?g skammast mín fyrir það að þetta sé þingkona kjörin af almenningi til að fara með forræði ríksins,” skrifar Elliði Vignisson, bæjarstjóri og skrifar þarna um 3. þingmann Reykjavíkur suður, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Samfylkingunni. Sigríður var í þættinum
Í bítinu á Bylgjunni og fór þar yfir málflutning Elliða. �?eir sem hafa fylgst með umræðunni síðustu vikur, greindu hins vegar nokkurt misræmi í því sem Elliði skrifaði og sagði, og því sem Sigríður Inga hélt fram að hann hefði skrifað eða sagt.
�??Hún leggur mér orð í munn um að ég vilji leggja niður mikilvægar stofnanir og heldur því svo fram að sértækur skattur á úgerðir hafi verið lækkaður á Vestmannaeyjar. Hið sanna er að sá skattur var hækkaður. Síðan þekkir hún ekki betur til en svo að hún heldur því svo fram að sértækur skattur á sjávarútveg í Vestmannaeyjum hafi verið lækkaður. Hið sanna er að sá skattur var hækkaður, og skömm sé núverandi ríkisstjórn fyrir það. Hið sanna er að í dag greiða útgerðir í Eyjum sem nemur 570 þúsund pr. íbúa í Vestmannaeyjum í þennan skatt. Samt er ekki hægt að sinna heilbrigðisþjónustu. Skammastu þín Sigríður fyrir að þekkja ekki betur til. �?ú vinnur við þessi mál (eða færð amk, borgað fyrir það),�?? skrifar Elliði á facebook síðu sína.
�??�?g get ekki átt samræður við Elliða um það að leggja niður �?jóðleikhúsið. �?að er bara einhvern veginn móðgandi og vandræðalegt,�?? sagði Sigríður m.a. í þættinum.
�??Að maðurinn, sem er bæjarstjóri í einni stærstu verstöð landsins, sem er nýlega búinn að fá gríðarlegan afslátt á því að nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar, sem er fiskurinn í sjónum, skuli vera með þetta sem sitt helsta innlegg í íslenska stjórnmálaumræðu er náttúrulega bara vandræðalegt og ætti fyrir sjálfstæðismenn, þeir ættu að skammast sín og segja það opinberlega.�??
Smelltu hér til að hlusta á spjall þingmannanna Sigríðar Ingu og Brynjars Níelssonar, Sjálfstæðisflokki við þáttastjórnendur.