Endurvaldi tölurnar og endaði með milljónir!

Þriðjudaginn 17. júní, á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga, hlaut heppinn Íslendingur glæsilegan vinning í EuroJackpot – rúmar 35 milljónir króna!

Í tilkynningu frá Getspá segir að vinningshafinn, sem er kona, hafi keypt sjálfvalsmiða í gegnum Lottóappið og ákvað að hreinsa út tölurnar sem komu fyrst upp og fá nýjar í staðinn. Sú ákvörðun reyndist sannarlega skynsöm – því hún var ein af sex heppnum Evrópubúum sem skiptu með sér öðrum vinningi.

„Ég trúði þessu varla þegar símtalið kom frá Íslenskri getspá,“ segir hún og bætir við að það hafi verið frekar erfitt að klára vinnudaginn eftir slíkar fréttir. Hún ákvað þó að bíða með að segja manninum sínum frá vinningnum þar til þau voru komin heim – svo hann gæti allavega lokið sínum degi í ró og næði.

Hjónin, sem eru rík af börnum og barnabörnum, sjá fyrir sér að nota vinninginn í skemmtilegt fjölskyldufrí þar sem allir geta notið saman. „Það er dásamlegt að geta deilt svona gleði með sínum nánustu,“ bætir hún við.

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.