Í morgun var þess minnst að 100 ár eru frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara frá Einarshöfn á Eyrarbakka.
Kennarar og nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri ásamt fleirum, alls um 200 manns, heiðruðu minningu listamannsins með 100 kyndla blysför frá Eyrabakkaskóla að listaverkinu Kríunni eftir Sigurjón í Hraunprýði austan við Litla-Hraun.
Himnafaðirinn tendraði einnig sitt blys er sólin sendi geisla sína á þessa glæsilegu athöfn.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst