Skrifað undir samning við SALM í dag

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli eigenda fyrirhugaðrar bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum og bruggverksmiðjunnar SALM í Austurríki. Það voru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen, forsvarsmenn verksmiðjunnar og Wellidte, einn af eigendum og forstjóri SALM í Austurríki sem skrifuðu undir samninginn.Björgvin Þór sagði í samtali við www.sudurland.is að hann væri í senn stoltur og svolítið stressaður. „Þetta er mikið verkefni sem við erum að taka að okkur því ekki einungis munum við framleiða bjórinn Volcano heldur verðum við líka umboðsaðilar SALM á Íslandi. Svo er möguleiki á að við munum fara í útflutning á Volcano bjór í framhaldinu,” sagði Björgvin.

Eins og greint hefur verið frá er stefnan sett á að framleiðslan verði komin í gang 1. júlí 2008.

 

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.