Fræðslu- og skólamál snerta alla íbúa

�?rn �?órðarson sveitarstjóri Rangárþings ytra segist vera nokkuð sáttur við skólaþingið, þó vissulega hefði mæting mátt vera betri, sérstaklega frá foreldrum nemenda í Grunnskólanum á Hellu. �?�?arna voru þó stigin skref í þá átt að kalla eftir viðhorfum hagsmunaaðila til fræðslumála almennt,�? segir �?rn. �?Hvernig við náum til þeirra aðila sem einhverra hluta vegna sáu […]

Færi aftur til tíma Jesú Krists

Fæðingardagur: 30. nóvember 1988.Fjölskylduhagir: �?g er á föstu með Inga Frey. Foreldrar: �?orsteinn Viktorsson og Díanna �?yri Einarsdóttir.Systkini: Alexander Jarl og Viktoría Rún.Heimili: Illugagata, Vestmannaeyjum.Skólaganga: �?g er á þriðja ári í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ.Helstu áhugamál: Fimleikar, dans, ferðast og vera með fjölskyldu og vinum.Uppáhaldsstaður á Íslandi: Vestmannaeyjar.En erlendis: Spánn.Hvaða hlutar í eigu þinni gætir þú […]

Eldur í loftræstibúnaði

Miklar brunaskemmdir urðu á loftræstibúnaði en eldurinn náði ekki tökum í klæðningu hússins, samkvæmt upplýsingum Selfosslögreglu. Að sögn lögreglu varð starfsmaður Landsnets, sem rekur umrætt skýli, eldsins var og gerði hann slökkviliði viðvart.Eldsupptök eru í rannsókn en þau eru rakin til vélarbilunar í loftræstikerfi. (meira…)

Mun meiri fólksfækkun í Eyjum en á Ísafirði

Hátt kall Ísfirðinga um athygli og viðbrögð komst strax inn á borð ríkisstjórnar Íslands og full ástæða til. Vandi Ísafjarðar er vandi ýmissa jaðarsvæða á landsbyggðinni í hnotskurn. �?að er flott hjá Ísfirðingum að láta í sér heyra og reyna að spyrna við fótum. Árangur næst ekki nema með baráttu, samstöðu og frumkvæði heimamanna.Forsætisráðherra sagði […]

Njála uppáhalds bókin

Fæðingardagur: 12. mars 1986.Foreldrar: �?löf Jónsdóttir og Ríkharður Traustason.Systkini: �?g á níu yngri systkini: Jón Heiðar, Sindri, Björgvin Snævar, María, Daníel Brynjar, Sara Rut, Anton Elvar, Svandís Rós og Andri Fannar.Heimili: Hveragerði.Skólaganga: �?g lýk stúdentsprófi í FSu í vor og vinn með skólanum sem fimleikaþjálfari og liðveitandi.Helstu áhugamál: Ferðast og kynnast nýjum og framandi menningarheimum. […]

Skorar á hundaeigendur að hirða upp skítinn

�?�?g veit að þetta eru ekki margir en þeir eru þó nógu margir til að skemma fyrir þeim sem hirða upp eftir hundana sína. �?g vil hins vegar skora á skussana að sinna þessu lögbundnu hlutverki sínu að hirða upp skítinn eftir hundana sína.�?Hér að neðan má svo sjá bæði aðkomuna og skítinn kominn í […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.