Fæðingardagur: 12. mars 1986.
Foreldrar: �?löf Jónsdóttir og Ríkharður Traustason.
Systkini: �?g á níu yngri systkini: Jón Heiðar, Sindri, Björgvin Snævar, María, Daníel Brynjar, Sara Rut, Anton Elvar, Svandís Rós og Andri Fannar.
Heimili: Hveragerði.
Skólaganga: �?g lýk stúdentsprófi í FSu í vor og vinn með skólanum sem fimleikaþjálfari og liðveitandi.
Helstu áhugamál: Ferðast og kynnast nýjum og framandi menningarheimum. Vinna með börnum og unglingum. Tíska, hönnun, dans, fimleikar, söngur, tónlist og lesa góðar bækur o.m.fl.
Uppáhaldsstaður á Íslandi: �?ykir voðalega vænt um Hveragerði því ég ólst þar upp. En það eru svo margir fallegir staðir á Íslandi að það er varla hægt að gera upp á milli.
En erlendis: Taj MaHal í Indlandi og Himalaja fjöllin, hef verið svo heppin að koma á þessa staði og get varla beðið eftir að eignast fleiri svona uppáhalds staði.
Hvaða hlutar í eigu þinni gætir þú síst verið án: Hlutir skipta mig ekki það miklu máli en ef ég væri að hlaupa úr brennandi húsi og gæti bjargað einhverju að þá væru það ljósmyndir af vinum og fjölskyldu.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á: �?að er enginn einn, er rosalega stolt af öllu íslenska afreksfólkinu sem við eigum. Og hef líka mikla trú á systkinum mínum sem íþróttafólk og auðvitað líka á krökkunum sem ég er að þjálfa í fimleikum.
Uppáhalds listamaður: Stefán Hilmarsson í Sálinni hans Jóns míns.
Uppáhalds bók: Njála og Da vinci lykillinn.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison Break, King of Qeens og Sjálfstætt fólk.
Á hvað trúir þú: Guð, hamingju og jafnrétti.
Hvað er best og hvað er verst í fari þínu: �?g er jákvæð, brosmild, metnaðargjörn, með sterka jafnréttiskennd og sjálfstæð. �?g get verið þrjósk og dagdreymin.
En í fari annarra: Kurteisi og tillitsemi er kost en ókurteisi og virðingaleysi ókostur.
Ef þú þyrftir að syngja í kareókí hvaða lag mundir þú velja? Summer of 69.
Hvað hræðistu eða veldur þér mestum kvíða: �?g hræðist ekkert. Hræðsla og kvíði er bara hugarfar. Lífið er sífelld áskorun.
Eftirminnilegasta atvik í lífinu: �?egar ég fór til Indlands í sjálfboðastarf í 2 mánuði, kenndi og sá þar um 1árs -8 ára börn sem bjuggu við mjög bágbornar aðstæður svo mæðurnar gætu unnið á t.d. teökrunum og ferðaðist ein um Indland í tvær vikur. �?metanleg lífsreynsla.
Eftirminnilegast úr æsku: Á svo margar góðar minningar úr æskunni með fjölskyldu minni og vinum. Finnst ég rosalega lukkuleg að eiga svona margar góðar minningar.
Af hverju tekurðu þátt í fegurðarsamkeppni: �?ðlast lífsreynslu, svo tel ég mig vera góða fyrirmynd sem Ungfrú Suðurland.
Ef ekki í samtímanum, hvenær hefðir þú helst viljað vera uppi: Hvenær sem er, elska að lifa.
Lífsmottó eða eftirlætis málsháttur: Enginn þarf eins á brosi að halda og sá sem sjálfur á ekkert bros eftir til að gefa! �?að er ekki æfingin sem skapar meistarann heldur aukaæfingin!
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst