Gert er ráð fyrir um 610,8 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu Vestmannaeyjabæjar á árinu 2027 og fjárfestingum fyrir 1,1 milljarð króna án lántöku. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun sem tekin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember. Áætluninni var vísað samhljóða til síðari umræðu.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri kynnti áætlunina og fór yfir helstu forsendur hennar. Samkvæmt fundargerð sagði hún stöðu bæjarsjóðs áfram trausta, þrátt fyrir áskoranir í rekstri sveitarfélaga og fjármögnun lögbundinna verkefna. Tekjur væru varlega áætlaðar líkt og undanfarin ár.
Heildartekjur samstæðunnar eru áætlaðar tæpir 11,2 milljarðar króna. Jákvæð rekstrarniðurstaða A-hluta er áætluð um 443,8 milljónir króna og veltufé frá rekstri samstæðunnar um 1,48 milljarðar. Handbært fé samstæðunnar í árslok er áætlað um 1,61 milljarður króna.
Útsvarsprósenta verður óbreytt milli ára, 14,91 prósent, en álagsprósenta fasteignaskatts lækkar á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Bæjarstjórn samþykkti jafnframt í sumar að setja 2,5 prósenta þak á gjaldskrárhækkanir í A-hluta.
Í sameiginlegri bókun allra níu bæjarfulltrúa kemur fram að með þakinu og aðhaldskröfu í rekstri vilji bæjarstjórn leggja sitt af mörkum til að ná tökum á vöxtum og verðbólgu.
Við fyrri umræðu er gert ráð fyrir 1.100 milljóna króna fjárfestingum sem verði fjármagnaðar án lántöku. Fjárfestingaráætlun næstu fjögurra ára verður yfirfarin milli umræðna. Við síðari umræðu mun bæjarstjóri fara nánar yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og áhersluverkefni bæjarstjórnar.
Fjármögnun NSL-4 lagnarinnar setur mark sitt á áætlanagerð bæjarins. Fram kom í framsögu bæjarstjóra að Vestmannaeyjabær hefði fjármagnað lögnina og að tjón á henni væri enn til mats.
Bæjarstjórn telur það óásættanlegt að annað árið í röð sé enn beðið svara frá ríkisstjórninni um fjármögnun lagnarinnar við gerð fjárhagsáætlunar. Að mati bæjarstjórnar ber ríkinu að greiða kostnaðinn, sem nemur þremur milljörðum króna. Fáist hann ekki greiddur skerðist framkvæmdageta sveitarfélagsins verulega.
Áætlunin getur tekið breytingum áður en hún verður endanlega afgreidd. Meðal annars liggja áætlanir um framlög úr Jöfnunarsjóði ekki að öllu leyti fyrir. Þá er eftir að ljúka yfirferð gjaldfærðra verkefna og taka afstöðu til óska um fjárframlög og viðbótarstöðugildi.
Fram kom einnig að ný reglugerð um fyrirkomulag málaflokka og breyttar forsendur innri leigu geri samanburð milli ára erfiðari.
Bæjarstjórn samþykkti með níu samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun ársins 2027 til síðari umræðu. Þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2028–2030 var sömuleiðis vísað samhljóða til síðari umræðu.