Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins

Sex þingmenn vilja láta undirbúa kaup eða smíði á aukaferju til Vestmannaeyja og bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til reksturs Herjólfs. Dýpkun í Vestmannaeyjahöfn er hafin, fjárhagsáætlun bæjarins fór í fyrri umræðu og Deloitte tekur við endurskoðun sveitarfélagsins. Á handboltavellinum unnu bæði lið ÍBV Stjörnuna. Hér er litið yfir liðna viku. Vilja aukaferju og gagnrýna skerðingu […]
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur

Styrktartónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja eru jafnan stórviðburður í tónlistarlífi Eyjanna og tónleikarnir í Hvítasunnukirkjunni í gær voru þar engin undantekning. Hljóðfæraleikarar fylltu sviðið í gamla skemmtisalnum og frá fyrstu tónum var ljóst að hér átti að láta til sín taka. Krafturinn var mikill, samhljómurinn glæsilegur og lagavalið fjölbreytt. Byrjunin gat vart verið hressilegri. Sjálf klassíkin Birdland […]
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári

Gert er ráð fyrir um 610,8 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu Vestmannaeyjabæjar á árinu 2027 og fjárfestingum fyrir 1,1 milljarð króna án lántöku. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun sem tekin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember. Áætluninni var vísað samhljóða til síðari umræðu. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri kynnti áætlunina og fór yfir helstu forsendur […]
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum

Lúðrasveit Vestmannaeyja hélt árlega hausttónleika sína í Hvítasunnukirkjunni í gær, laugardaginn 7. nóvember. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með tónleikunum í gegnum linsuna. Hátt í 40 hljóðfæraleikarar komu fram. Á efnisskránni voru meðal annars lög eftir Oddgeir Kristjánsson, mars eftir Sousa og syrpa þjóðhátíðarlaga sem útsett var fyrir landsmót lúðrasveita í Eyjum í september. […]