
Sex þingmenn vilja láta undirbúa kaup eða smíði á aukaferju til Vestmannaeyja og bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til reksturs Herjólfs. Dýpkun í Vestmannaeyjahöfn er hafin, fjárhagsáætlun bæjarins fór í fyrri umræðu og Deloitte tekur við endurskoðun sveitarfélagsins. Á handboltavellinum unnu bæði lið ÍBV Stjörnuna. Hér er litið yfir liðna viku.
Sex þingmenn leggja til að undirbúin verði kaup eða smíði á ferju sem sigldi með Herjólfi yfir sumartímann. Í greinargerð með tillögunni benda þeir á að eftirspurnin sé mest á sumrin og að fullbókaðar ferðir geti gert Eyjamönnum erfitt fyrir að komast til lands um helgar. Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Á miðvikudag gagnrýndu allir níu bæjarfulltrúarnir boðaða skerðingu á framlögum til reksturs Herjólfs í fjárlagafrumvarpinu. Í sameiginlegri bókun segja þeir skerðinguna fela í sér skilaboð um skertar samgöngur milli lands og Eyja. Bæjarstjórn tók jafnframt undir ályktun ársþings SASS um framlög ríkisins til innviða og þjónustu á Suðurlandi. Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Dæluskipið Sebastiano Caboto vinnur að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Vestmannaeyjahöfn. Fjarlægja á um 50 þúsund rúmmetra af efni og koma því fyrir í stæði fyrirhugaðs hafnargarðs utan við Eiðið. Dýpkunin er hluti af verkefninu við styttingu Hörgaeyrargarðs og efnið nýtist við uppbyggingu hafnaraðstöðu utan við Eiðið. Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum
Við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 var gert ráð fyrir 610,8 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðunnar og fjárfestingum fyrir 1,1 milljarð króna án lántöku. Útsvarið verður óbreytt, 14,91 prósent, en álagsprósenta fasteignaskatts lækkar á íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Bæjarstjórn vísaði áætluninni samhljóða til síðari umræðu. Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Óvissa um fjármögnun NSL-4 hefur áhrif á áætlanir bæjarins. Dómsmálaráðuneytið tók í bréfi sínu enga afstöðu til þess hvort lögnin teldist almannavarnainnviður og bæjarstjóri ítrekaði ósk um fund með innviðaráðuneytinu. Að mati bæjarstjórnar mun það skerða framkvæmdagetu sveitarfélagsins verulega ef bærinn þarf að bera þriggja milljarða króna kostnað af lögninni. Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Á sama fundi samþykkti bæjarstjórn sex milljóna króna framlag í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum til að ljúka fjármögnun rannsóknarvinnu sumarsins.
Bæjarstjórn staðfesti samhljóða á miðvikudag að Deloitte tæki við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2028. Bæjarráð hafði upphaflega valið KPMG en taldi eftir frekari skoðun að fyrirtækið uppfyllti ekki skilyrði verðkönnunarinnar um starfsstöð á endurskoðunarsviði í Vestmannaeyjum. Tilboð Deloitte var tæplega 1,3 milljónum króna lægra á ári en tilboð KPMG. Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Kvennakór Vestmannaeyja, Karlakór Vestmannaeyja og Kór Landakirkju héldu sameiginlega tónleika á fimmtudagskvöld. Hver kór flutti sína dagskrá áður en kórarnir þrír sungu saman undir stjórn Kittyar Kovács. Söngveisla þriggja kóra · Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Á laugardag hélt Lúðrasveit Vestmannaeyja árlega hausttónleika sína í Hvítasunnukirkjunni. Á efnisskránni voru meðal annars lög Oddgeirs Kristjánssonar og syrpa þjóðhátíðarlaga. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, myndaði tónleikana. Uppselt var á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV sem var á dagskrá í Kiwanis um kvöldið. Hausttónleikar lúðrasveitarinnar
Kvennalið ÍBV vann Stjörnuna 27–21 í Olísdeildinni á laugardag. Sandra Erlingsdóttir skoraði 16 mörk og Ólöf Maren Bjarnadóttir varði 11 skot. Þetta var sjötti deildarsigur Eyjakvenna í röð. Þær eru í öðru sæti með 14 stig, tveimur stigum á eftir Haukum. ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni
Karlalið ÍBV vann einnig Stjörnuna á heimavelli sunnudaginn 1. nóvember. Eyjamenn voru tveimur mörkum undir í hálfleik en unnu 31–26. Atli Steinn Arnarson skoraði 14 mörk, þar af 12 í síðari hálfleik. Atli Steinn fór á kostum gegn Stjörnunni
Tryggvi Már Sæmundsson
Ritstjóri Eyjafrétta