ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Sandra Erlingsdóttir átti stórleik fyrir ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta vann sannfærandi 27–21 sigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í 8. umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyjum í dag. Þetta var sjötti sigur Eyjakvenna í röð, en þær sitja í öðru sæti deildarinnar.

Eyjakonur settu tóninn strax í upphafi leiks og komust í 4–0 eftir tæplega átta mínútna leik. Þegar 20 mínútur voru liðnar var staðan 8–4. ÍBV hélt áfram að hafa yfirhöndina og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 13–7.

Eyjakonur héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og höfðu áfram góð tök á leiknum. Stjarnan náði þó að minnka muninn í fjögur mörk á upphafsmínútum hálfleiksins, 14–10.

ÍBV náði aftur góðu forskoti og leiddi með sex mörkum, 20–14, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Stjörnukonur minnkuðu muninn í þrjú mörk, 23–20, þegar skammt var eftir en komust ekki nær. ÍBV hélt forystunni og fagnaði að lokum sex marka sigri. Lokatölur 27–21.

Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í liði ÍBV og var markahæst með 16 mörk. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði 11 skot í marki heimakvenna.

Með sigrinum er ÍBV áfram í öðru sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka. Stjarnan situr hins vegar á botni deildarinnar með tvö stig.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 16 mörk, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Andrea Jacobsen 2, Birna Dögg Egilsdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1.

Leikir dagsins í Olís deild Kvenna:

  • 15:00 Selfoss – KA/ÞÓR
  • 15:00 Valur – HK

 

 

Nýjustu fréttir

ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.