Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs

Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir boðaða skerðingu á framlögum ríkisins til reksturs Herjólfs ohf. í fjárlagafrumvarpinu. Í sameiginlegri bókun frá fundi bæjarstjórnar 4. nóvember segja bæjarfulltrúarnir að skerðingin feli í sér skilaboð um skertar samgöngur milli lands og Eyja. Allir níu bæjarfulltrúarnir standa að bókuninni. Bæjarstjórn tekur undir ályktun ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) þar sem framganga […]

ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum

Kvennalið ÍBV í handbolta vann sannfærandi 27–21 sigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í 8. umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyjum í dag. Þetta var sjötti sigur Eyjakvenna í röð, en þær sitja í öðru sæti deildarinnar. Eyjakonur settu tóninn strax í upphafi leiks og komust í 4–0 eftir tæplega átta mínútna leik. Þegar 20 […]

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, mun halda tveggja daga varnarnámskeið í fótbolta á vegum Bubka Sports Lab í Herjólfshöllinni í Vestmannaeyjum dagana 18.–19. desember. Námskeiðið er ætlað bæði þjálfurum og leikmönnum og verður lögð áhersla á tæknilega og taktíska þætti varnarleiks Á námskeiðunum verður farið ítarlega yfir varnarleikinn, allt frá tæknilegum grunnþáttum til taktískrar útfærslu. […]

Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða 4. nóvember sex milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna hlutafjáraukningar í Eyjagöngum. Framlagið er liður í að ljúka fjármögnun rannsóknarvinnu sumarsins vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja. Eyjagöng óskuðu eftir því að núverandi hluthafar ykju hlut sinn um 20 prósent á sama gengi og áður, einni krónu á […]

Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir

Miðstöðin bauð viðskiptavinum og velunnurum sínum í kokteilboð í gærkvöldi þar sem samveran og gleðin voru í fyrirrúmi. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, mætti með myndavélina og fangaði fjörið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það er líka tilefni til að skála hjá Miðstöðinni, sem er á lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 samkvæmt […]

Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka

Kvennalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Stjörnunni í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í dag, laugardaginn 7. nóvember. Leikurinn er í áttundu umferð Olísdeildar kvenna og hefst klukkan 14:00. Eyjakonur eru í öðru sæti deildarinnar og freista þess að halda í við topplið Hauka. ÍBV hefur farið vel af stað á tímabilinu og unnið sex af fyrstu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.