Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Heimir Hallgrímsson.

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, mun halda tveggja daga varnarnámskeið á vegum Bubka Sports Lab í Herjólfshöllinni í Vestmannaeyjum dagana 18.–19. desember. Námskeiðið er ætlað bæði þjálfurum og leikmönnum og verður lögð áhersla á tæknilega og taktíska þætti varnarleiks

Á námskeiðunum verður farið ítarlega yfir varnarleikinn, allt frá tæknilegum grunnþáttum til taktískrar útfærslu. Meðal þess sem verður tekið fyrir er rétt líkamsstaða, líkamsbeiting, staðsetningar og ákvarðanataka við mismunandi aðstæður.

Einnig verður farið yfir hvernig einstaklingsbundin varnartækni tengist taktískum þáttum leiksins og hvernig leikmenn og þjálfarar geta nýtt þá þekkingu inni á vellinum.

Kennslan fer fyrst fram á skjá, þar sem farið verður yfir helstu áherslur og leikstöður, áður en þekkingin er færð út á völlinn með verklegum æfingum

Fyrri dagurinn verður helgaður tæknilegum þáttum varnarleiks, þar sem áhersla verður lögð á líkamsstöðu, líkamsbeitingu og einstaklingsbundna færni. Seinni dagurinn snýr að taktískum þáttum, staðsetningum, samvinnu leikmanna og viðbrögðum við mismunandi leikstöðum.

Auk námskeiðsins í Vestmannaeyjum verður sambærilegt námskeið haldið í Miðgarði í Garðabæ dagana 28.–29. nóvember.

Takmarkað pláss er í boði á námskeiðunum og því eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér sæti sem fyrst.

Hægt er að skrá sig hér.

 

Nýjustu fréttir

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.