Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða 4. nóvember sex milljóna króna viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna hlutafjáraukningar í Eyjagöngum. Framlagið er liður í að ljúka fjármögnun rannsóknarvinnu sumarsins vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja.
Eyjagöng óskuðu eftir því að núverandi hluthafar ykju hlut sinn um 20 prósent á sama gengi og áður, einni krónu á hlut. Bæjarráð samþykkti samhljóða að bærinn tæki þátt í hlutafjáraukningunni. Framlagið verður fjármagnað með handbæru fé bæjarins.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir á vef Vestmannaeyjabæjar að bærinn hafi frá upphafi lagt áherslu á að styðja við rannsóknirnar svo traust gögn lægju fyrir.
„Með áframhaldandi þátttöku styður Vestmannaeyjabær við að ljúka þeirri mikilvægu rannsóknarvinnu sem er forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um framhald verkefnisins,“ segir Íris.
Í bréfi Haraldar Pálssonar, framkvæmdastjóra Eyjaganga, til hluthafa kemur fram að vettvangsrannsóknum sé lokið. Tvær kjarnaholur hafa verið boraðar og hafbotnsmælingar ná yfir um 282 kílómetra. Samstarfsyfirlýsing var undirrituð 2. september við innviðaráðherra fyrir hönd ríkisins.
Samkvæmt bréfinu vinnur ÍSOR úr gögnum botnmælinganna í vetur. Í kjölfarið vinna Efla, Völuberg og Norconsult að fýsileika- og kostnaðarmati. Íslandsbanki og Landsbankinn vinna að arðsemisgreiningum. Niðurstaðna er að vænta undir lok árs 2026 eða í byrjun árs 2027.