Björgunarfélag Vestmannaeyja ræst út í kvöld
Félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja voru ræstir út í kvöld vegna veðurs við Þórsheimilið En við hið nýja tjaldstæði voru fellihýsi farin að fjúka og fóru félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja á staðinn og aðstoðuðu gesti tjaldstæðisins. (meira…)
2 sólahringar, 21 klukkustund og 24 mínútur

Ég gef nú lítið fyrir þessar heimsenda spár hans Sigga Storms. Minnist þess nú bara að hann spáði hitabylgju fyrir síðustu Þjóðhátíð. Er það reyndar sérstaklega minnisstætt, þar sem ég notaði það til þess að byrja ræðuna sem ég neyddist til að halda við vígslu Vitans í fyrra. Byrjaði á að bjóða alla velkomna í […]
Innréttað sem veitingastaður
Greiðlega gekk að flytja eitt elsta hús Selfossbæjar, Ingólf, frá Eyravegi yfir í á leikhúslóðina við Sigtún. Húsið er byggt árið 1926 og hefur alla tíð staðið við Eyrarveg. (meira…)
Fjórða jafnteflið á Hásteinsvelli í sumar

Lið Fjarðabyggðar mætti í fyrsta sinn á Hásteinsvöll í kvöld. Veðrið var hálf napurt í kvöld, norðaustan strekkingsvindur sem jókst þegar leið á leikinn. Eyjamenn tóku í raun öll völd á vellinum strax í byrjun og héldu boltanum nánast allan fyrri hálfleikinn. Eftir rúmlega tíu mínútna leik átti Jeffsie frábæra sendingu inn fyrir á Inga […]
Steindautt jafntefli

Eyjamenn náðu ekki að færa sig upp í fjórða sæti þegar þeir tóku á móti Fjarðarbyggð. Aðeins munar einu stigi á liðunum, ÍBV er í fimmta sæti og Fjarðarbyggð sæti ofar en með sigri hefðu Eyjamenn færst nær toppliðunum þremur. Leikurinn í kvöld á Hásteinsvellinum var hins vegar afar bragðdaufur þar sem gestirnir lögðu alla […]
Hitta vini og fjölskyldu og skemmta sér

Nú styttist í það að brott fluttir eyjamenn og konur sem og aðrir þeir sem ætla að skemmta sér á Þjóðhátíð í eyjum fari að streyma til eyja. Eyjar.net sló á þráðinn til Sigurjóns Lýðssonar og spjallaði stuttlega við hann um hans hlið á Þjóðhátíðinni. Sigurjón Lýðsson eða Don Guiseppa eins og hann kallast af […]
Jarðgöng til Eyja slegin af
Þá liggur ákvörðun ríkistjórnar loks fyrr. Jarðgöngin til Eyja hafa verið slegin af þar sem kostnaður er talin of mikill. Þetta eru að sjálfsögðu vonbrigði fyrir mig og alla aðra áhugamenn um bættar samgöngur að búið sé að slá jarðgöng af. En í ljósi kostnaðarmats þá kemur ákvörðun ríkisstjórnarinnar svo sem ekki á óvart. Að […]
Herjólfsbær fær hlutverk

Nú hefur verið ákveðið að munavarsla á Þjóðhátíð verði til húsa í Herjólfsbæ. Munavarslan hefur verið mörgum þyrnir í augum enda verið staðsett í þremur gámum sem hafa verið staðsettir á hátíðarsvæðinu. Auk þess hefur verið mikil fyrirhöfn í að koma aðstöðunni upp en með tilkomu Herjólfsbæjar er sú vinna úr sögunni. (meira…)
Bæjarráð vill flýta höfn í Bakkafjöru

Bæjarráð tók í dag á fundi sínum til umfjöllunar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um framtíðarsamgöngur við Vestmannaeyjar. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að framkvæmdum við gerð ferjuhafnar í Bakkafjöru og smíði nýs Herjólfs verði flýtt eins og kostur er þannig að hægt verði að hefja siglingar milli Eyja og Bakkahafnar árið 2009.Ályktunina má lesa í heild sinni […]
Rís bjórverksmiðja í Vestmannaeyjum í vor?
Í gangi er könnun á hagkvæmni þess að setja á stofn bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum. Verði niðurstaðan jákvæð er stefnt að því að hefja starfsemi næsta vor og er gert ráð fyrir sex til átta störfum við verksmiðjuna, frá þessu er greint á sunnlenska fréttavefnum sudurland.is.Það er fyrirtækið 2B-Company á Selfossi sem þarna á hlut að […]