Fjórða jafnteflið á Hásteinsvelli í sumar
31. júlí, 2007

Lið Fjarðabyggðar mætti í fyrsta sinn á Hásteinsvöll í kvöld. Veðrið var hálf napurt í kvöld, norðaustan strekkingsvindur sem jókst þegar leið á leikinn. Eyjamenn tóku í raun öll völd á vellinum strax í byrjun og héldu boltanum nánast allan fyrri hálfleikinn. Eftir rúmlega tíu mínútna leik átti Jeffsie frábæra sendingu inn fyrir á Inga Rafn sem komst í gott skotfæri en skot hans var lélegt og beint á markmann Fjarðarbyggðar. Nokkrum mínútum síðar fengu Fjarðabyggð reyndar frábært skallafæri, þar sem einn leikmaður þeirra var algerlega ódekkaður inní teig, en sem betur fer fór skallinn framhjá.

Eftir rúmlega 25 mínútna leik fékk Andy gott skallafæri en skallaði rétt yfir. Fjórum mínútum síðar gerðist svo fyrsta umdeilda atvikið í leiknum. Þá kom fyrirgjöf og Andy var að gera sig líklegan að skalla boltann þegar honum var greinilega hrint svo hann steinlá. Mjög svo slakur dómari leiksins, Jóhannes Valgeirsson, dæmdi ekki vítaspyrnu og það hlýtur að hafa verið vegna þess að hann þorði því ekki, því allir á vellinum sáu þessa augljósu hrindingu. Fátt markvert gerðist eftir þetta í fyrri hálfleik. Palli átti einn skalla framhjá úr góðu færi og Fjarðabyggð átti eitt skot framhjá. Annars var lið ÍBV örugglega 70-80% með boltann í fyrri hálfleik en strákarnir náðu ekki að gera sér mat úr því.

Heimir setti Bjarna Hólm fram strax í byrjun seinni hálfleiks en sú breyting skilaði sér engan veginn. Eflaust hefði Heimir aldrei átt að gera þessa breytingu eða a.m.k bíða með hana þangað til aðeins seinna í hálfleiknum. Sérstaklega ef tekið er mið af því að í síðari hálfleik spilaði Eyjaliðið með vindinn í bakið og hefði eflaust komið betur út að hafa hraðari leikmann í framherjastöðunni.

Síðari hálfleikur var í stuttu máli sagt hundleiðinlegur á að horfa. Eyjapeyjar sköpuðu þó einu færin sem komu í hálfleiknum en Jeffsie fékk tvö góð færi, á 69. og 90. mín en inn vildi boltinn ekki. Á 78. mín gerðist annað mjög umdeilt atvik. Nsumba (Gústi) fékk þá stungusendingu inn fyrir vörn Fjarðabyggðar og var við að sleppa í gegn þegar hann virtist vera felldur. Í staðinn fyrir víti þá spjaldaði Jóhannes, Nsumba fyrir leikaraskap og þar með fékk hann rautt spjald því Gústi hafði fengið spjald fyrr í leiknum fyrir að slá boltann með hendinni inní teig andstæðinganna. Þaðan sem undirritaður sat, virtist ekki vera mikil snerting í þessu atviki en þeir sem staðsettir voru á betri stað, sögðu þetta hreina og klára vítaspyrnu. En það verður víst ekki deilt við dómarann og það sannaðist í þessum leik sem alltaf áður.

Niðurstaðan því 0-0 jafntefli og fjórða jafnteflið því staðreynd á Hásteinsvelli í sumar en auk þess hefur Eyjaliðið tapað einum leik á heimavelli. Liðið hefur því tapað 11 stigum á heimavelli þegar rúmlega helmingur mótsins er búinn og það gæti kostað liðið úrvalsdeildarsæti þegar lokatalning stiga fer fram í haust. Það er eins og menn þori ekki að sækja almennilega á heimavelli og þegar liðið kemur uppá vallarhelming andstæðinganna þá gerist bara ekki neitt eða hlutirnir verða mjög tilviljunarkenndir. Í þeim tveimur leikjum þar sem liðið hefur ekki verið ráðþrota sóknarlega á heimavelli, var gegn Stjörnunni og Reyni í bikarnum og það vita allir hvernig þeir leikir fóru. Þetta er eitthvað sem liðið verður einfaldlega að fara að laga, mótið styttist með hverjum leiknum.

Yngvi Borgþórsson var sem klettur á miðjunni og Gústi og Jeffsie áttu ágætis spretti í kvöld. Gústi er greinilega framtíðarleikmaður. Hann er mjög snöggur, með góða fyrstu snertingu og kemur boltanum alltaf í spil. Lítið reyndi á vörnina í þessum leik enda lá lið Fjarðabyggðar vel til baka og beittu skyndisóknum sem urðu ekki margar í leiknum. Atli átti líklegast sinn lélegasta leik í sumar eftir þrennuna í síðasta leik gegn Reyni og munar um minna. Hann var alltof mikið að reyna að hnoðast sjálfur í gegnum vörnina í stað þess að spila boltanum. Lítið kom út úr Inga Rafni sem hefur einfaldlega ekki náð að finna rétta dampinn í sumar. Aðrir geta ugglaust betur en mestu munaði um liðsheildina og að þora að sækja á andstæðingana því það sást greinilega í leiknum að lið ÍBV er mun betra knattspyrnulið heldur en lið Fjarðabyggðar.

Lið ÍBV í leiknum: Krummi-Pétur í hægri bak-Garner í vinstri bak-Palli og Bjarni í miðvörðum-Yngvi og Andy á miðjunni-Jeffsie fremstur á miðjunni-Gústi hægri kantur, Ingi Rafn vinstri kantur og Atli frammi.

Varamenn: Bjarni Rúnar kom inn fyrir Inga Rafn á 75. mín, Anton kom inn fyrir Yngva á 75. mín, Stefán Björn kom inn fyrir Pétur á 86. mín. Elías Fannar og Sindri Viðarsson komu ekki við sögu í leiknum.

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.