Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð á Þjóðhátíð í nótt
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til Vestmannaeyja rétt fyrir klukkan 5 í nótt til að sækja mann sem hafði verið fluttur á sjúkrahúsið með höfuðáverka eftir slys og í framhaldi var hann fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík, að sögn lögreglunnar í Eyjum. (meira…)
Með þeim fjölmennari sem haldin hefur verið
Þjóðhátið 2007 sem nú er að ljúka var með þeim fjölmennari sem haldin hefur verið. Áætlað er að vel yfir tíu þúsund manns hafi verið á kvöldvökunni í gærkvöldi þegar brekkusöngurinn fór fram. Þetta kemur fram í frétt frá lögreglu. (meira…)
Maður með höfuðáverka fluttur með þyrlu til Reykjavíkur

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt og gistu þrír fangageymslu lögreglunnar fyrir ölvun og óspektir í Herjólfsdal. Mest var að gera hjá lögreglunni þegar komið var undir morgun. (meira…)
Fjölmenni á tónleikum KK og Magga Eiríks

Félagsheimilið á Flúðum var þétt setið á laugardag, þegar tónleikar KK og Magga Eiríks fóru þar fram. Tónleikarnir heppnuðust að mati fólks gríðarlega vel, en hægt er að sjá myndir frá skemmtuninni inn á ljósmyndasíðu Suðurland.is. Sjá myndir. (meira…)
Dalton í �?thlíð

Hljómsveitin Dalton hélt uppi gríðarlegu stuði í Réttinni í Úthlíð á bæði laugardags og sunnudagskvöld. Myndir frá dansleiknum á laugardag, sem komnar eru inn á ljósmyndasíðu Suðurland.is, ættu að tala sínu máli. Sjá myndir. (meira…)
Banaslys á Laugarvatnsvegi
Banaslys varð á Laugarvatnsvegi á móts við bæinn Þóroddsstaði laust eftir klukkan sjö í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi lést ökumaður fólksbíls þar þegar hann missti stjórn á bílnum í beygju. Virðist bíllinn hafa farið nokkrar veltur og ökumaðurinn kastast út úr henni. Lögreglumenn komu á slysstað rétt á eftir. Þeir höfðu áður […]
Ellefu fíkniefnamál komu upp á þjóðhátíð

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir, að 11 fíkniefnamál hafi komið upp á þjóðhátíðinni um helgina, sem var með þeim fjölmennari, sem haldin hefur verið. Talið er að um 10 þúsund manns hafi tekið þátt í kvöldvöku í Herjólfsdal í gærkvöldi þegar Árni Johnsen stýrði brekkusöng. Lögreglan segir að fíkniefnamálin í ár séu mun færri en undanfarin […]
Vel gengur að koma þjóðhátíðargestum frá eyjum

Það er sól og blíða í Vestmannaeyjum og vel gengur að koma þjóðhátíðargestum frá eyjum. Flugfélag Vestmannaeyja og Flugfélag Íslands fljúga í allan dag og Herjólfur siglir þrjár ferðir. Góð þjóðhátíðarstemning er ríkjandi á flugvellinum og er það mál manna að þjóðhátíðargestir hafi verið sér og þjóðhátíðinni til sóma yfir helgina. (meira…)
Um tíu þúsund manns á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum

Um tíu þúsund manns eru á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og búast við mótshaldarar við að fleiri komi á svæðið í kvöld. Hátíðarhöld hafa farið vel fram, en þó hafa níu fíkniefnamál hafa komið upp um helgina. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt þar. Þrír gistu fangageymslur og tilkynnt var um tvær minniháttar […]