Gott veður á fyrri degi Kaupþingsmótsins

Kaupþingsmótið í golfi hófst í morgun en mótið er næst síðasta mótið í mótaröðinni. Ágætis veður hefur verið í Vestmannaeyjum í dag, í morgun þegar mótið hófst var sól og blíða en nú síðdegis dró fyrir sólu og hefur rignt nokkuð. Hins vegar má búast við talsverðum vindi á morgun samkvæmt veðurspám þannig að segja […]
Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja enn taplaus

Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja á Norðurlandsmótinu grunnskóla í skák, er nú búin að tefla 3 umferðir og hefur enn ekki tapað viðureign. Hefur unnið 2 viðureignir og gert eitt jafntefli. Eyjapeyjarnir hafa unnið sveit frá Finnlandi 3-1, sveit frá Danmörku 3-1 og gerðu jafntefli við norska stráka 2-2. (meira…)
NM barnaskóla: Grunnskóli Vestmannaeyja í 2. sæti eftir 3-1 sigur á Dönum

Skáksveit Grunnskóla Vestmanneyja sigraði danska sveit 3-1 í 3. umferð Norðurlandamóts barnaskólasveita sem fram fór í Örsundsbro í Danmörku í dag. Nökkvi Sverrisson, Sindri Freyr Guðjónsson og Hallgrímur Júlíusson unnu sínar skákir en Alexander Gautason tapaði. Sindri hefur sigrað í öllum skákum! Eyjamenn eru nú í öðru sæti í flokknum með 8 vinninga en mótinu […]
Stefán lék vel á stigamótinu í Eyjum

Stefán Már Stefánsson úr GR lék best allra á fyrsta hringum á Kaupþingsmótaröðinni í Vestmannaeyjum í dag. Hann lék á 68 höggum eða 2 höggum undir pari vallar en Sigurþór Jónson úr GK og Sigurður Pétursson úr GR léku á pari vallar eða 70 höggum. Stefán var í 18. sæti stigalistans á Kaupþingsmótaröðinni fyrir mótið […]
Hvenær kemur að okkur ?????

Með þessu húsi er hafin uppbygging heilsu-, íþrótta- og fræðaseturs í Kópavogi í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Knattspyrnu Akademíu Íslands. Húsið er einkar glæsilegt og mun nýtast knattspyrnumönnum sem og knattspyrnuáhugamönnum vel í framtíðinni og verður aðstaða fyrir allt að 2000 áhorfendur í höllinni. Aðrar helstu upplýsingar: Stærð hússins 10.998 m2 ásamt 3.459 m2 […]
Nýr ritstjóri Vaktarinnar

Júlíus Ingason hefur verið ráðinn ritstjóri Vaktarinnar til næstu áramóta, í stað Jóhanns Inga Árnasonar sem haldið hefur til Bandaríkjanna í nám. Áfram mun Vaktin vera í sama broti og verið hefur. Með nýjum ritstjóra munu koma aðrar áherslur í blaðinu og hann mun setja sitt mark á það. Þá verður útgáfudegi blaðsins breytt, úr […]
Dýrt að pissa í Reykjavík
Alls voru tuttugu og tveir einstaklingar sektaðir fyrir að kasta af sér hlandi á almannafæri í miðborginni í nótt. Mennirnir voru allir færðir á lögreglustöð og gert að greiða sekt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu allir undir sátt í málinu nema tveir. Þeir voru of ölvaðir og fengu að sofa úr sér í […]
300 tonn, takk fyrir !!

Það bjóst enginn við að það væri þetta magn í pokanum því við vorum búnir að sjá svo illa á aflanemana og það rétt kornaði í gatinu á höfuðlínustykkinu. En það kom annað á daginn heil 300 tonn. Við dældum 200 tonnum í okkur og restin, eða 100 tonn fóru yfir í Hákon EA. Síldin […]
Nýju skipi �?órðar og Ingigerðar gefið nafn

Nýju skipi Þórðar Rafns Sigurðssonar og Ingigerðar Eymundsdóttur var gefið nafn gær í pólsku skipasmíðastöðinni sem byggir skipið.. Og það var Ingigerður sem braut kampavínsflöskuna á byrðingi skipsins og gaf því nafnið Dala-Rafn VE. (meira…)
Hemmi og Gunnar Heiðar í byrjunarlið Íslands í kvöld.

Í kvöld eigast við á Laugardalsvelli Ísland – Spánn og er landsleikurinn liður í undankeppni EM 2008 í Sviss og Austurríki. Hermann er fyrirliði í kvöld og leikjahæsti landsliðsmaðurinn í hópnum með 71 landsleik og þegar tölfræði landsliðsins er skoðuð er Hermann næst markahæsti leikmaðurinn í hópnum á eftir Eiði Smára. www.eyjar.net fann til nokkur skemmtileg […]