Kolkrabbi í Sæheimum

Sæheimum barst góð gjöf í gærmorgun en þá kom áhöfnin á Gullbergi VE með kolkrabba á safnið. �??Kolkrabbar halda sig jafnan í holum sem þeir finna og eru ekki mikið að sýna sig. �?essi leyfði þó að láta taka af sér nokkrar ljósmyndir áður en hann lét sig hverfa í neðansjávarhellinn sinn. Honum hefur verið […]

Endaði í fjórða sæti í sínu fyrsta móti

Lögreglumaðurinn Haraldur Geir Hlöðversson tók í síðustu viku þátt í Heimsmeistaramótinu í sjómanni. Halli Geir, eins og hann er alla jafna kallaður, gerði sér lítið fyrir og endaði í fjórða sæti á sínu fyrsta heimsmeistaramóti en þetta er aðeins í fjórða sinn sem hann tekur þátt í sjómannsmóti. Heimsmeistaramótið fór fram í Vilnius í Litháen […]

Natasha og Shaneka áfram hjá ÍBV

�?ær Shaneka Gordon og Natasha Anasi, leikmenn ÍBV í knattspyrnu, skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning við félagið. Shaneka leikur því sitt fjórða tímabil með félaginu en hún hefur verið markadrottning liðsins undanfarin ár. �?á var Shaneka valin leikmaður ársins hjá ÍBV á síðasta leiktímabili. Natasha kom til liðs við ÍBV í félagsskiptaglugganum í júlí […]

Gaf Glenn viljandi olnbogahögg?

Sóknarmaður ÍBV, Jonathan Ricardo Glenn, sem er jafnframt markahæsti leikmaðurinn í Pepsídeildinni, virðist hafa gefið Guðmundi Reyni Gunnarssyni, leikmanni KR viljandi olnbogaskot í leik liðanna á KR-vellinum á sunnudaginn. Boltinn er víðsfjarri þegar Glenn kemur aftan að Guðmundi Reyni og ekki er hægt að sjá annað en að Glenn reki olnbogann viljandi í hnakka Guðmundar, […]

Herjólfur á heimleið

Heimsigling Herjólfs gengur vel. Á vefnum marinetraffic.com má sjá staðsetningu allra skipa og þar á meðal Herjólfs sem var í morgun útaf Stavangri í Noregi og siglingarhraðinn var 15.3 sjómílur. Reiknað er með Herjólfur verði kominn til Eyja á laugardaginn og geti farið í áætlunarsiglingar á sunnudag ef allt gengur eftir. (meira…)

Vilja byggja 120 herbergja hótel

H-Eyjar ehf hefur ítrekað óskir sínar um byggingu 120 herbergja hótels á þeirri lóð sem varð ofan á í íbúakosningu vorið 2013. �?etta kemur fram í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja en svæðið sem um er rætt, er svæðið ofan við Skanssvæðið. �??Ráðið vill árétta við bréfritara að það svæði sem varð ofaná í íbúakosningu […]

Veruleg kauphækkun

Síðastliðinn föstudag var skrifað undir nýjan kjarasamning undirmanna Herjólfs. Kjaraviðræður voru langar og enduðu með lagasetningu í vor, sem gilti til 15. september. �?á var Herjólfur kominn í slipp í Svíþjóð en áður en hann hélt þangað, lá samkomulagið fyrir milli Sjómannafélags Íslands og Eimskips. �??Eimskip vildi binda þessa samninga við aðra sem þeir voru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.