The hunger games

Ég horfði á bíómyndina The hunger games 2 um helgina. Myndir sem hafa fengið mikið lof og eru verðlaunaðar víða erlendis, en ég verð að viðurkenna alveg eins og er að mér fannst önnur myndin alveg jafn léleg og fyrsta myndin, og söguþráðurinn ansi þvælukenndur, en eitt greip þó athygli mína. Í myndunum kemur fram gríðarlega […]

Fimleikataktar og jólasveinn

Fimleikafélagið Rán hélt árlega jólasýningu í dag þar sem iðkendur á ýmsum aldri sýndu listir sínar. Að sýningu og verðlaunaafhendingu lokinni fengu börn og fullorðnir tækifæri til að láta mynda sig með jólasveini. �?egar barn eitt spurði hann að nafni, svaraði sá hvítskeggjaði: �??Veistu, ég er orðinn svo gamall að ég man ekki hvað ég […]

Jólasýning Ránar í dag kl. 17

Árleg jólasýning Fimleikafélagsins Rán fer fram í dag miðvikudaginn 17. desember kl. 17.00 í íþróttamiðstöðinni. �?ar sýna fimleikastjörnur framtíðarinnar fimi sína og er jafnan mikið lagt í sýninguna. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir og er aðgangseyrir aðeins kr. 500 og miðast við fermingaraldur. Og að sjálfsögðu verður jólasveinninn á staðnum. (meira…)

Sigurður VE kominn heim

Sigurður VE 15, nýjasta skip Ísfélags Vestmannaeyja, kom til heimahafnar í Eyjum um miðnætti í gær eftir erfiða siglingu frá Noregi, þar sem skipið hefur verið í viðgerð í þrjá mánuði vegna bilunar í spilkerfi þess. Siglingin frá Egersund í Noregi tók fjóra sólarhringa en þaðan lagði skipið af stað aðfaranótt laugardags. Veður var slæmt […]

�?g reikna með að enginn skipstjóri sigli við þessar aðstæður

Í fréttum á Bylgjunnar kl. 17,00 í gær var sagt að nýr innanríkisráðherra, �?löf Norðdal, hafi ákveðið að ný ferja yrði smíðuð í stað núverandi Herjólfs. Sagt var í fréttinni að árlegur sparnaður yrði rúmar 300 milljónir, einnig var sagt að ný ferja sigldi allt árið til Landeyjahafnar. Enn og aftur er verið að ljúga […]

Jólablað Eyjafrétta �?? Dreift á morgun

Jólablað Eyjafrétta verður dreift í Vestmannaeyjum á morgun. �?að var prentað í Reykjavík og átti að koma með fyrsta flugi í morgun en þar setti veðrið strik í reikninginn. �?að er því væntanlegt með Herjólfi í kvöld og getur útburðarfólk nálgast blaðið strax í fyrramálið. Jólablaðið er 52 síður og mjög fjölbreytt að efni. Stór […]

Gítarsveitin í kvöld – Yrsa kemur á sunnudagskvöld

Vegna veðurs eru breytingar á viðburðum í Eldheimum. Í kvöld miðvikudag 17.des. kl. 20.00 leikur Gítarsveit Tónlistarskóla Vestmannaeyja, stjórnandi Eyvindur Ingi Steinarsson. Fyrir tónleikana verður stutt kynning á Yrsu Sigurðardóttir og bókinni: �?sku, sem gerist á Eldheimasvæðinu. Á sunnudaginn 21.des kl. 20.00 kemur Yrsa Sigurðardóttir metsölubókahöfundur og les úr nýju bókinni sinni DNA. Hægt verður […]

Arnar Péturson ráðin þjálfari Handboltastjarnanna (Hvítir)

Nú rétt í þessu voru Handboltastjörnurnar (Hvítir) að staðfesta ráðningu á nýjum þjálfara. Eftir fréttir gærdagsins um að Daði Páls hefði tekið að sér þjálfun Rauða liðsins varð Hvíta liðið að bregðast hratt við. �?að var fundað í alla nótt og náðu aðilar ekki saman fyrr en rúmlega átta í morgun. Birgir Reimar talsmaður Hvíta […]

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar – ekkert flug

Ákveðið er að Herjólfur siglir til �?orlákshafnar á eftir og er brottför frá Vestmannaeyjum kl. 15:30 og brottför frá �?orlákshöfn klukkan 19:15. Eins og venjulega eiga farþegar að mæta 30 mínútum fyrir brottför og eru þeir beðnir um að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi R�?V. Ekkert […]

Lögreglunámið hefði breyst mikið gegnum árin

Föstudaginn 12. desember 2014 fór brautskráning nemenda Lögregluskóla ríkisins fram við hátíðlega athöfn í húsnæði skólans að Krókhálsi 5b. Brautskráðir voru 16 nemendur sem hófu grunnnám við skólann þann 14. janúar 2014. Í fyrsta sinn í sögu lögreglunáms á Íslandi voru konur í meirihluta brautskráðra en í hópnum voru 5 karlar og 11 konur, eða […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.