Guðný Helga opnar sýninguna „Inni að lita-leikur með liti”

Guðný Helga Guðmundsdóttir sem borin er og barnfædd Eyjamaður heldur sýningu á verkum sínum í Einarsstofu. Guðný Helga er fædd og uppalin á Blómsturvöllum að Faxastíg 27.  

Foreldrar hennar voru Sigríður Kristjánsdóttir og Guðmundur Kristjánsson, oft kenndur við Hvanneyri. Guðný er í áhöfn VE1953.

„Ég hef tekið námskeið í myndlist og lengi verið að mála en það var fyrir þremur árum sem ég komst í kynni við það sem ég er að gera í dag,“ segir Guðný Helga. „Það kallast flæðilist, float art á ensku. Ég vinn með akrílliti sem ég set í allskonar efni til að láta það bindast og flæða. Ég endurvinn gamlar vínilplötur og bý úr þeim meðal annars veggklukkur og er aðeins að byrja hylja þau verk með resin til að gera þær sterkari og fá meiri gljáa. Líka koma litirnir sterkar út.“

Sýningin sem hún kallar Inni að lita-leikur með liti verður opnuð klukkan 17.00 í dag.  „Mér hafði aldrei dottið í hug að halda sýningu en var hvött til þess af Heiðari frænda Egilssyni og Beggó vinkonu, Ingibjörgu Bergrós Jóhannesdóttur og manni hennar, Sigurði Waage,“ segir Guðný Helga að lokum.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.