Kvikmyndahátíðin hefst í dag

Það er víða leitað fanga á kvikmyndahátíð sem Vestmannaeyjabær stendur fyrir dagana áttunda til tólfta maí nk. Hátíðin verður sett með móttöku í Kviku kl. 17.OO  í dag, miðvikudag og stuttmyndum af Vestmannaeyjum frá upphafi síðustu aldar þegar Vestmannaeyjabær sem við þekkjum í dag er að verða til. 

Það er víða leitað fanga á kvikmyndahátíð sem Vestmannaeyjabær stendur fyrir dagana áttunda til tólfta maí nk. Hátíðin verður sett með móttöku í Kviku kl. 17.OO  í dag, miðvikudag og stuttmyndum af Vestmannaeyjum frá upphafi síðustu aldar þegar Vestmannaeyjabær sem við þekkjum í dag er að verða til. 

Á þessari fimm daga kvikmyndahátíð verður margt á boðstólnum. Dagskrá dagsins er sem hér segir:

Miðvikudaginn 8. maí 2019, kvikmyndasýning kl. 17.00 til 18:00 (athugið breyttan sýningartíma).

Vestmannaeyjabær að fæðast, lifandi myndir frá fyrri hluta 20. aldar.  Arnar Sigurmundsson og Kristján Egilsson skýra það sem fyrir augu ber.

Sýndar verða stuttmyndir úr fórum Kvikmyndasafns Íslands og Safnahúss Vestmannaeyja.  Elstu lifandi myndir sem vitað er um af Vestmannaeyjum og eru hinar elstu frá 1916. Eru þetta bæjarlífsmyndir, myndir af atvinnuháttum til sjávar og sveita og myndir af einstaklingum sem möguleiki er að bera kennsl á.

Þá verður sýnd stuttmynd Lofts Guðmundssonar ljósmyndara sem var kennari í Vestmannaeyjum og önnur stuttmynd sem kennd er við Kjartan Guðmundsson ljósmyndara en báðar eru frá 1924.

Sýningu lýkur klukkan 18.00 þannig að allir komist á leik ÍBV og Hauka í handboltanumVestmannaeyjabær býður á allar þessar sýningar í tilefni aldarafmælis kaupstaðarins.

 

Nýjustu fréttir

Sigla síðdegis í Landeyjahöfn
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Gul viðvörun: Norðaustan hríð
ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.