Lokatónn á glæsilegri afmælishátíð
22. nóvember, 2019
landakirkja-3.jpg
Landakirkja. Eyjar.net/TMS

„Við erum mjög ánægðir með að afmælisnefndin vilji ljúka formlegri afmælisdagskrá með þessum hætti og það gleður okkur að kirkjan taki þátt í afmælisfögnuðinum,“ sagði Viðar Stefánsson, prestur Landakirkju um sameiginlega messu kristinna safnaða og tónleika með landsþekktu listafólki í Landakirkju á sunnudaginn.

„Kirkjan hefur svo sannarlega átt sinn sess í sögu Vestmannaeyja og á enn. Kirkjulíf hér í Eyjum hefur verið fjölskrúðugt í gegnum tíðina og söfnuðir komið og farið. Kristur stendur þó alltaf upp úr í gegnum bárur, brim og voðasker og því er verðugt að fela sögu okkar, nútíð og framtíð í hans hendur,“ sagði Viðar einnig.

Mikill söngur þar sem gestir koma fram með okkar fólki

„Þetta hefur ekki verið gert hér áður en í sumar skiptumst við á um að halda messur, einu sinni í Landakirkju og einu sinni hjá okkur. Var það gert til að fá fleira fólk og tókst vel,“ segir Guðni Hjálmarsson prestur Hvítasunnukirkjunnar.

„Þetta verður öðruvísi núna, stór messa þar sem Þjóðkirkjan, Hvítasunnukirkjan og Kaþólska kirkjan slá saman. Mikill söngur þar sem gestir koma fram með okkar fólki. Það verður lesið upp úr Guðspjallinu,  beðið fyrir framtíðinni  og þakkað fyrir það sem er gott og beðið um vernd og varðveislu,“ bætti Guðni við.

Um 90 manns í Eyjum sem tilheyra kaþólsku kirkjunni

Kaþólski presturinn, sem er sr. Denis O´Leary hefur búið á Íslandi í 30 ár og hefur messað hér reglulega. Hann er fæddur í Cork í suður Írlandi 1961 og ólst upp með foreldrum sínum og tveimur systkinum. Hann tók stúdentspróf í Cork 1978 og 1982 hóf hann prestsnám í St. Patrick´s College Thurles, Tipperary.  Eftir prestvígsluna 1988 starfaði hann einn vetur sem aðstóðarprestur í Cork og vorið 1989 flutti hann alfarið til Íslands. 

Hann gerði sér strax far um að komast inn í íslenskt samfélag. Sótti námskeið við HÍ í íslensku fyrir erlenda stúdenta sem tók þrjú ár og þá varð hann sóknarprestur í Maríukirkju í Seljahverfinu og er ennþá þar.

Allt Suðurlandið austur að Skeiðarársandi er hluti af Maríusókninni. Þess vegna fer reglulega prestur frá Maríukirkju til að lesa messu víðar á Suðurlandi, meðal annars í Landakirkju.  Í Vestmannaeyjum í dag eru um 90 manns sem tilheyra kaþólsku kirkjunni. Hann mætir og tekur þátt í messunni á sunnudaginn.

Dagskráin hefst kl. 13.00

Dagskráin hefst  stundvíslega kl. 13.00 með tónleikum í kirkjunni þar sem fram koma söngvararnir Gissur Páll, Hera Björk og gítarleikarinn Björn Thoroddsen.

Að loknum tónleikum hefst sameiginleg messa kristinna safnaða í Vestmannaeyjum. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri flytur ávarp. Prestar eru Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson, prestar Landakirkju, Guðni Hjálmarsson, prestur Hvítasunnukirkjunnar og sr. Denis O´Leary, prestur Kaþólsku kirkjunnar. Mikill söngur verður í messunni þar sem Gissur Páll, Hera Björk og Björn koma fram og Kór Landakirkju og Lofgjörðarsveit Hvítasunnukirkjunnar.

Um er að ræða lokaviðburð í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarréttinda Vestmannaeyjabæjar. Að lokinni dagskrá um kl. 14.30 býður bærinn samkomugestum til kaffisamsætis í Safnaðarheimili Landakirkju.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst