Þrettándinn í máli og myndum

Þessa dagana eru Sighvatur Jónsson, Geir Reynisson og Hrefna Díana Viðarsdóttir að leggja lokahönd á heimildarmynd um þrettándagleðina í Eyjum sem verður frumsýnd núna 27. desember næstkomandi. 

Hrefna Dína verður með fyrirlestur kl. 13.00 í Einarsstofu á laugardaginn sem hún byggir lokaritgerð sinni í þjóðfræði haustið 2012 um þrettándahátíðina í Vestmannaeyjum. Auk þess segir hún frá myndinni sem nú er í lokavinnslu og sýnir búta úr myndinni.

Heilluð af hátíðinni

„Ég var alveg heilluð af hátíðinni og hvernig er annað hægt þegar myrkur, eldur, læti og forynjur fylla mann af gleði og ótta. Ritgerðin heitir „Maður bíður meira eftir þrettándanum en eftir jólunum!“ Form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum,“ segir Hrefna.

„Í fyrirlestrinum langar mig að segja ykkur frá því sem ég lærði þegar ég rannsakaði leið Eyjamanna til að fagna þrettándanum frá 1948 til 2012. Ég segi frá gömlum hefðum Vestmannaeyinga og Evrópubúa   um blysfarir, dulbúninga- og heimsóknarsiði og hvort tengja megi þrettándagleðina við það.

Ég greini frá því hvernig þrettándagleðin hefur þróast í áranna rás. Svo mun ég gera tilraun til að skýra af hverju þessi hefð lifir og hvað hún gerir fyrir samfélagið og fyrir hópinn sem gerir þrettándagleðina að raunveruleika.

Þetta verður sem sagt smá nördaskapur í bland við ýmsan fróðleik um stolt Eyjamanna.
Þar að auki mun ég auðvitað kynna hina dásamlegu heimildarmynd okkar Sighvats Jónssonar og Geirs Reynissonar, Þrettándinn – heimildarmynd um þrettándagleðina í Eyjum,“ segir Hrefna sem er Eyjakona.

Gott að koma heim til Eyja

„Ég er fædd í Vestmannaeyjum sumarið 1978 og var ein af sirka 20 börnum sem voru skírð á annan í jólum það ár í Landakirkju. Það var ekki auðveldur burður í skírnarröðinni fyrir foreldra mína. Ég var vel í holdum enda þá löngu farin að borða skyr og stappaðan fisk með lýsi.

Ég hef verið búsett í Innri-Njarðvík undanfarin 14 ár en það er enn gott að koma heim til Eyja. Ég er svo heppin að eiga enn svefnpláss á æskuheimilinu hjá pabba mínum honum Viðari Guðmundssyni frá Lyngbergi og stjúpmóður minni henni Láru Laufeyju Emilsdóttur.“

Hvað ertu að gera núna?

Fyrir utan það að ég og eiginmaður minn erum í fyrirtækjarekstri á sviði byggingariðnaðar og bókhalds, þá erum við Sighvatur Jónsson og Geir Reynisson að leggja lokahönd á heimildarmynd um þrettándagleðina í Eyjum, en hún verður frumsýnd núna 27. desember næstkomandi,“ sagði Hrefna sem endingju sagðist hlakka til og vonast til að sjá sem flesta í Einarsstofu á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.