Drangavíkin vélarvana

Drangavík VE-80, ísfisktogari Vinnslustöðvarinnar, varð vélarvana á mánudaginn. Brynjólfur VE-3, frystitogari Vinnslustöðvarinnar, dró Drangavík í land er hún var á veiðum austan við Vestmannaeyjar. Blaðamaður hjá 200 Mílum Mbl.is náðu tali af Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, framkvæmdastjóra VSV: „Það varð tjón á vélinni. Þannig að þetta er sennilega talsvert mikið tjón. Véin hefur skemmst talsvert, það […]
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627

Laugardaginn 17. júlí nk. kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu. Í Ár eru liðin 394 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundruð Eyjamenn til Alsír og seldu þá […]
Opnað fyrir umsóknir á tjaldlóðum

Opnað hefur verið fyrir umsónir á lóðum fyrir hvítu tjöldin á Þjóðhátíð. Sækja þarf um “lóð” á www.dalurinn.is , skrá sig þar inn og fylla út upplýsingar sem beðið er um. Mikilvægt er að allir reitir sé fylltir út svo að umsókn sé gild. Nauðsynlegt er að vita nákvæma breidd á tjaldinu áður en umsókn […]
Óska eftir tilnefningum um umhverfisviðurkenningar

Hefð er fyrir því á hverju ári að veita umhverfisviðurkenningar í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær óskar nú eftir tilnefningum frá bæjarbúum varðandi umhverfisviðurkenningar í eftirfarandi flokkum: Snyrtilegasta fyrirtækið Snyrtilegasti garðurinn Snyrtilegasta eignin Vel heppnaðar endurbætur Framtak á sviði umhverfismála Tekið er á móti tilllögum út júlímánuð. Tillögur sendist á: inga@vestmannaeyjar.is (meira…)
Darija fer til Stjörnunnar

Markvörðurinn Darija Zečević hefur skrifað undir 2 ára samning við Stjörnuna. Hún kemur frá ÍBV þar sem hún hefur verið undanfarin 2 ár. Frá þessu er greint á facebook síðu stjörnunnar í gær. Darija er 23 ára og er frá Svartfjallalandi, hún hefur spilað með öllum yngri landsliðum Svartfjallalands. Darija tók þátt í öllum leikjum […]