LV og LR slá saman í Kviku í dag

„Við viljum minna á tónleikana okkar í Menningarhúsinu Kviku (leikhúsinu) í dag kl 16:00. Frítt inn & allir velkomnir,“ segir Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja á Fésbókarsíðu sinni í dag. Í annarri færslu segir Jarl: „Við í Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Reykjavíkur ákváðum nú fyrr í vetur að það væri gaman að hittast og spila saman […]

Hvatt til hreinsunarátaks – Má gera betur

„Í sumar eru eins og flestum er kunnugt 50 ár frá lokum Heimaeyjargossins. Á hverju ári er haldin goslokahátíð að því tilefni og verður þar engin undantekning í ár nema að þessu sinni verður hátíðin viðburðameiri,“ segir í síðustu fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs sem leggur til  að efnt verði til umhverfis- og hreinsunarátaks meðal íbúa […]

Nýtt merki Vestmannaeyjahafnar

Á fundi umhverfis- og framkvæmdasviðs á föstudaginn var lögð fram tillaga að hugmyndasamkeppni um merki Vestmannaeyjahafnar. Tilefnið er að 50 ár eru liðin frá því höfninni var bjargað í gosinu 1973. Ráðið fól hafnarstjóra að auglýsa hugmyndasamkeppni. Ráðið mun velja úr innsendum hugmyndum. Mynd: Litlu mátti muna að hraun lokaði höfninni en með kælingu tókst […]

Áfram byggt í Eyjum

DCIM100MEDIAYUN00052.jpg

Samkvæmt því sem kemur fram á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsnefndar er ekkert lát á byggingu íbúðarhúsnæðis í Vestmannaeyjum. Lóðir sem eru nefndar eru Áshamar 87 til 93 og Dverghamar 27 til 29. Líka lóðir við Búhamar 22, 54, 56, 80 og 30. Samtals níu lóðir og enn fleiri hús eru þegar í byggingu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.