Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar

Fjölgreindarleikum 1. til 7. bekkjar GRV lauk í gær eftir tvo viðburðaríka og skemmtilega daga. Leikarnir eru byggðir á kenningum Howards Gardners um fjölgreindir, þar sem lögð er áhersla á að nemendur fái að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á ólíka styrkleika. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Grunnskóla Vestmannaeyja. Þar segir að nemendur […]
Boranir hefjast í apríl

Eyjagöng ehf. hafa gert samning við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem liður í áframhaldandi könnun á fýsileika fastrar vegtengingar milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Markmið rannsóknanna er að afla ítarlegra upplýsinga um jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri leið. Boranirnar munu fara fram á tveimur stöðum, annars vegar […]
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta

Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út og spannar efnið vítt svið samfélagsins í Vestmannaeyjum, allt frá atvinnulífi og stjórnmálum til mannlífs og menningar. Forsíðuefni blaðsins er um lok loðnuvertíðar, sem gekk vel hjá bæði Ísfélaginu og Vinnslustöðinni. Fyrirtækin náðu að veiða allan úthlutaðan kvóta og framleiðsla var í samræmi við áætlanir. Töluverð umfjöllun er um […]
Opið hús og kertalýsing – myndir

Krabbavörn bauð til opins húss í Arnardrangi í dag í tilefni af Mottumars. Þar komu félagar og gestir saman, nutu samveru og fengu sér kaffi og meðlæti. Að lokinni samveru var haldið að minnisvarða Oddgeirs Kristjánssonar þar sem kveikt var á 37 kertum til minningar og stuðnings. Kertin loguðu í kvöldkyrrðinni og settu hátíðlegan svip […]