Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Heimir Hallgrímsson.

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við írska knattspyrnusambandið og verður hann áfram landsliðsþjálfari til ársins 2028. Greint var frá þessu í tilkynningu frá sambandinu í dag, þar sem fram kemur að Heimir hafi skrifað undir nýjan samning sem nær út lok Evrópumótsins 2028.

Heimir staðfesti sjálfur tíðindin á blaðamannafundi í dag, en þar kom fram að hann hygðist halda áfram uppbyggingu liðsins á næstu árum. Heimir, sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, tók við írska landsliðinu árið 2024. Framlenging samningsins er skýr vísbending um traust FAI á störfum hans og framtíðarsýn.

„Frábær tíðindi fyrir írska knattspyrnu!“

Fram kemur á samfélagsmiðlum írska knattspyrnusambandsins að þetta séu frábærar fréttir fyrir írska knattspyrnu. Heimir mun stýra írska landsliðinu í undanúrslitum umspilsins gegn Tékklandi í Prag næstkomandi fimmtudag, þar sem liðið freistar þess að tryggja sér sæti á HM í sumar. Aukin heldur er ljóst að Heimi sé ætlað að stýra liðinu á næsta Evrópumóti sem haldið verður sumarið 2028 á Írlandi, Englandi, Skotlandi og Wales.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.