Laxey á Seafood Expo North America
Hópurinn sem fór til Boston fyrir hönd Laxeyjar.

Fulltrúar frá Laxey sóttu nýverið Seafood Expo North America sýninguna sem haldin var í Boston núna í mars.

Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar og sameinar birgja og kaupendur úr öllum greinum sjávarútvegs, allt frá fiskeldi og vinnslu til dreifingar og sölu. Hún er því mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki til að mynda tengsl, skiptast á hugmyndum og ræða framtíð greinarinnar.

Fulltrúar Laxeyjar buðu gestum og gangandi að koma við, kynna sér starfsemina og eiga samtal um tækifæri í sjávarútvegi.

Einnig var Vinnslustöðin með viðveru á sýningunni, en þátttaka íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja undirstrikar mikilvægi þess að fylgja eftir tengslum og tækifærum á alþjóðlegum mörkuðum.

„Við erum afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem við fengum, áhugann sem okkur sýndur var og samtalið við kollega úr greininni,“ kemur fram í tilkynningu frá Laxey.

 

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.