Um Páskahelgina var haldið fjórða Vestmannaeyjameistaramótið í tölvuleiknum FIFA í Playstation
3. Í þetta skiptið var mótið í boði Hallarlunds og Senu en mótið fór fram í Hallarlundi. 28 keppendur mættu til leiks og spiluðu tveir saman í liði. Að lokum var það liðið Eldurinn, sem þeir Björgvin Már Þorvaldsson og Valur Már Valmundsson skipa, sem stóð uppi sem sigurvegari.