Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Innisundlaugin í Eyjum hefur verið lokuð í fleiri mánuði vegna viðhalds. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Í vikunni hefur verið unnið að svokölluðum I/O prófunum á búnaði við sundlaugina og hefur tekist að taka í notkun nær allan búnað kerfisins.

Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ kom hins vegar í ljós þegar hugbúnaðarsérfræðingur kom á verkstað að bæði mótorloki fyrir hitun og lokamótor voru rangir. Nú er beðið eftir réttum búnaði svo hægt sé að ljúka prófunum.

Áætlað er að prófanir á virkni búnaðar klárist í lok næstu viku, að því er fram kemur í upplýsingum á vef Vestmannaeyjabæjar. Á næstu dögum verður meðal annars unnið við prófanir á niðurfallsbrunni, hringrásardælum og sandsíum, auk þess sem sundlaugin verður sett í áfyllingu. Þegar laugin hefur fyllst verða prófuð flæðiskynjarar, klór- og CO₂-kerfi og hitunarreglun kerfisins.

Nýjustu fréttir

Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum
Gætti vandlega græna litsins á Ísleifunum
Sjómannadagskrá laugardags
Sjómannskonur: Ásta Jóna
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.