Myndband frá höfninni: Steðji VE landar

Lífið við höfnina í Vestmannaeyjum er lifandi og síbreytilegt. Hér að neðan má sjá stutt myndband sem Halldór B. Halldórsson tók við höfnina, þar sem meðal annars má fylgjast með löndun úr smábátnum Steðja VE. Slík augnablik minna á hversu stóran þátt hafið og sjávarútvegurinn eiga í daglegu lífi Eyjamanna. (meira…)

Að loknu prófkjöri

eythor_h_cr

Í gær lauk prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með frábærri þáttöku félagsmanna, en þegar yfir lauk höfðu 1178 manns mætt á kjörstað og greitt atkvæði. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk í oddvitasætið og geri allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir því trausti sem mér hefur verið falið. […]

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  

radhustrod_ráðhús_merki_cr

Eyjafréttir óskuðu eftir upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ um lögfræðikostnað. Bærinn synjaði Eyjafréttum um nánari sundurliðun lögfræðikostnaðarins niður á hvaða mál eða verkefni kostnaðurinn tengdist með vísan til þess að slík samantekt myndi krefjast verulegrar handvirkrar vinnu.   Eyjafréttir óskuðu eftir sundurliðun lögfræðikostnaðar síðustu tveggja ára, meðal annars eftir upplýsingum um hvaða mál þjónustan tengdist, hvort um væri að ræða einstök verkefni eða reglubundna […]

ÍBV tapaði gegn Haukum

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Haukum á útivelli, í 19. umferð Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með tveggja marka sigri Hauka, 25-23. Fyrir leikinn höfðu Eyjakonur unnið fjóra leiki röð.  Haukar byrjuðu leikinn betur og voru mjög sterkar varnarlega. Eyjakonur skoruðu aðeins eitt mark á fyrstu 13 mínútum leiksins. Eftir stundarfjórðung var […]

Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús

Bæjarráð Vestmannaeyja tók fyrir á síðasta fundi sínum erindi frá Þresti B. Johnsen þar sem hann krafðist skaðabóta vegna framkvæmda við gatnagerð austan við Alþýðuhús. Þröstur telur að framkvæmdirnar hafi valdið rekstrarskaða. Í erindi sínu til bæjarráðs segir hann að aðgengi að húsinu hafi verið lokað beggja vegna í um tvo mánuði í sumar, haust […]

Laxey rís í Vestmannaeyjum

Uppbygging Laxeyjar er stærsta atvinnuverkefni sem ráðist hefur verið í í Vestmannaeyjum frá upphafi. Í viðtali við frumkvöðlana, Daða Pálsson og Hallgrím Steinsson fara þeir yfir aðdragandann, áskoranirnar og þá miklu vinnu sem liggur að baki. Þeir ræða jafnframt stöðu samfélagsins, ábyrgð stjórnvalda og mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og sérhæfð störf sem styrkja framtíð […]

Arnór bestur í tapi Karlskrona

Arnor_ibv_DSC_6463 (1)_op

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson var bestur í tapi Karlskrona gegn Amo í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld. Arnór skoraði átta mörk úr níu skotum og gaf að auki fjórar stoðsendingar.  Amo reyndust sterkari í leiknum og unnu fimm marka sigur, 34-39. Karlskrona er í hörkubaráttu um sæti í úrslitakeppninni en þeir sitja í 9. sæti […]

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi

Í vikunni hefur verið unnið að svokölluðum I/O prófunum á búnaði við sundlaugina og hefur tekist að taka í notkun nær allan búnað kerfisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ kom hins vegar í ljós þegar hugbúnaðarsérfræðingur kom á verkstað að bæði mótorloki fyrir hitun og lokamótor voru rangir. Nú er beðið eftir réttum búnaði svo hægt […]

ÍBV sækir Hauka heim

ÍBV sækir Hauka heim í dag í 19. umferð Olísdeildar kvenna þegar flautað verður til leiks í Kuehne+Nagel höllinni klukkan 13:00. Eyjakonur eru í harðri toppbaráttu í deildinni og geta með sigri haldið áfram að setja pressu á topplið Vals. ÍBV situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 30 stig, tveimur stigum á eftir […]

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Eythor_hardar_opf

Uppfært: kl. 01.50 Lokatölur liggja nú fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þar sem raðað var á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Samkvæmt niðurstöðunum hafnaði Eyþór Harðarson í efsta sæti listans. Á kjörskrá voru 1.672 og greiddu 1.178 atkvæði sem jafngildir 70,5% kjörsókn. Af þeim voru 36 atkvæði auð eða ógild. Endanleg niðurstaða í efstu […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.